Stokkönd (Anas platyrhynchos)

Útbreiðsla

Stokkönd verpur í Norður-Ameríku, á Grænlandi, í Evrópu og Asíu.

Stofnfjöldi

Stokkönd er hér tiltölulega algengur og útbreiddur varpfugl og hefur stofninn verið gróflega metinn 10.000−15.000 pör (Umhverfisráðuneytið 1992). Ef haft er í huga að stokkönd er staðfugl að mestu, þá stemmir það mat nokkuð vel við áætlaðan fjölda vetrarfugla við strendur landsins (42.000 fuglar; Arnþór Garðarsson 2009).

Válistaflokkun

LC (ekki í hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
LC LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 6,6 ár Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 20 ár.

Vetrarvísitala sýnir lítilsháttar aukningu í stokkandarstofninum á viðmiðunartímabilinu (1994–2014) og hann er auk þess það stór að hann telst ekki í hættu (LC) (sjá graf).

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Stokkönd var ekki í hættu (LC).

Verndun

Stokkönd er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Á takmörkuðum svæðum, þar sem andarvarp er mikið, skal veiðirétthafa heimilt að taka egg frá stokkönd. Við slíka eggjatöku skulu ávallt skilin eftir minnst fjögur egg í hverju hreiðri. Eggin má hvorki bjóða til sölu, selja, kaupa, gefa né þiggja að gjöf.

Samkvæmt reglugerð 456/1994 er heimilt er að veiða stokkönd frá 1. september til 15. mars.

Válisti

Engir varp-, viðkomu-, fjaðrafellistaðir eða vetrarstöðvar hér á landi teljast alþjóðlega mikilvægar fyrir stokkendur.

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 i: Evrópa/Grænland = 74.000 fuglar/birds; 24.667 pör/pairs (Wetlands International 2016)

B1 i: NV-Evrópa = 45.000 fuglar/birds; 15.000 pör/pairs (Wetlands International 2016)

Myndir

Heimildir

Arnþór Garðarsson 2009. Fjöldi æðarfugls, hávellu, toppandar og stokkandar á grunnsævi að vetri. Bliki 30: 49–54.

Umhverfisráðuneytið 1992. Iceland: national report to UNCED. Reykjavík: Umhverfisráðuneytið.

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search[skoðað 26. nóvember 2016].

Höfundur

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018

Biota

Tegund (Species)
Stokkönd (Anas platyrhynchos)

Samantekt á Ensku

The Anas platyrhynchos population in Iceland is roughly estimated 10,000‒15,000 pairs. No areas in Iceland meet IBA criteria for this species.

Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.