Fjallalójurt (Antennaria alpina ssp. canescens)

Útbreiðsla

Fjallalójurt er fremur sjaldgæf og finnst aðeins á hinu landræna svæði hálendisins norðan jökla og um austanvert norðurland. Hún vex stundum hátt til fjalla (hæst 1070 m á Kirkjufjalli við Hörgárdal) en er einstöku sinnum einnig á melum á láglendi (Hörður Kristinsson - floraislands.is).

Vistgerðir

Melkollar eða þurrar melbrekkur á láglendi eða í grýttum jarðvegi til fjalla (Hörður Kristinsson 1998).

Lýsing

Fremur smávaxin jurt (5–12 sm) með smáum, gráloðnum, oddbaugóttum blöðum. Blómgast í júní.

Blað

Stöngullinn lóhærður, blöðóttur; flest blöðin stofnstæð í hvirfingu, frambreið (2–3 mm) með stuttum broddi í endann (Hörður Kristinsson 1998).

Blóm

Blómin einkynja í sérbýli, mörg saman í litlum (5 mm), þéttstæðum körfum sem líkjast brúsk af gráum hárum. Reifablöðin 3–5 mm löng, græn við fótinn en brúnleit eða svarbrún ofan til, lensulaga. Krónan gul á karlblómum, purpurarauð á kvenblómum, hárfín (0,1 mm), 3–4 mm á lengd, umkringd fjölmörgum hvítum hárum (svifkrans). Stíllinn stendur upp úr krónupípunni á kvenblómunum; klofið fræni (Hörður Kristinsson 1998).

Aldin

Fræ með svifkrans (Lid og Lid 2005).

Greining

Hún líkist fljótt á litið grámullu sem er miklu algengari. Fjallalójurtin hefur breiðari blöð og vex ekki í snjódældum (Hörður Kristinsson 1998).

Útbreiðslukort

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Melkollar eða þurrar melbrekkur á láglendi eða í grýttum jarðvegi til fjalla (Hörður Kristinsson 1998).

Biota