Útbreiðsla
Afar sjaldgæf tegund á Íslandi, hefur aðeins fundist á tveimur stöðum í Flóanum. Ekki er ljóst hversu lengi hún hefur verið í landinu, gæti hugsanlega hafa borist hingað á síðari öldum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Blautar mýrar.Lýsing
Smávaxin planta (10–40 sm) með hvítum, fjórdeildum blómum og fjórblaða kransi.
BlaðFjögur til sex blöð í kransi. Blöðin með einum aðalstreng eftir miðju (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
BlómBlómin oftar fjórdeild en þrídeild, hvít á lit (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
GreiningMinnir einkum á þrenningarmöðru en er þó töluvert stærri, með fjögur til sex blöð í kransi og með hvítum, oftar fjórdeildum en þrídeildum blómum. Þekkist frá krossmöðru á blöðunum sem eru með einum aðalstreng eftir miðju laufblaðinu.
Válistaflokkun
CR (tegund í bráðri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
CR | LC |
Forsendur flokkunar
Stofn mýramöðru er mjög lítill, einungis eru þekktir tveir fundarstaðir hennar og virðist hún horfin af öðrum þeirra og útbreiðslusvæði hennar er afar lítið.
Viðmið IUCN: B1; B2b(ii,iii,v); C2a(i); D
B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til aðb. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi þátta;(ii) dvalar- eða vaxtarsvæðis,(iii) stærðar, umfangs og/eða gæða búsvæðis,(v) fjölda fullþroska einstaklinga.
C. Stofn talinn minni en 250 fullþroska einstaklingar ogC2. Fullþroska einstaklingum hefur fækkað samfellt samkvæmt athugun, áætlun eða ályktun OG(a) Stofngerð þannig að;(i) enginn undirstofn sé talinn stærri en 50 fullþroska einstaklingar.
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Mýramaðra er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Válisti 1996: Mýramaðra er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Verndun
Mýramaðra er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Blautar mýrar.Biota
- Tegund (Species)
- Mýramaðra (Galium palustre)