Útbreiðsla
Sjaldgæfur á Íslandi. Hann vex eingöngu á láglendum svæðum (mest neðan 200 m) þar sem snjóþyngsli eru mjög mikil. Til dæmis er hann með algengari burknum í Héðinsfirði. Hann vex einnig á Ólafsfirði, Siglufirði, í Fjörðum og sums staðar á Vestfjörðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Vistgerðir
Snjódældabollar og gilskorningar, einkum neðan til í fjöllum en finnst einnig við jarðhita (Hörður Kristinsson 1998).Lýsing
Meðalhár burkni (15–35 sm) með sígræn blöð, fjaðurskipt eða djúpflipótt.
BlaðBlöðin vaxa upp af sterkum jarðstöngli, sígræn, fjaðurskipt eða djúpflipótt, með 30–45 heilrendum, ofurlítið odddregnum bleðlum hvoru megin. Bleðlarnir 1–2 sm á lengd en 2–4 mm á breidd, lengstir um miðju. Gróbæru blöðin frábrugðin, upprétt, fjöðruð, eins og tvíhliða kambur í lögun; bleðlar þeirra örmjóir (1 mm). Stilkur blöðkunnar er aðeins 1/5–1/4 af heildarlengd hennar, nema á gróbæru blöðunum þar sem hann getur verið helmingur hæðarinnar (Hörður Kristinsson 1998).
BlómGróhirslur í samfelldum línum á neðra borði bleðla gróbæru blaðanna (Hörður Kristinsson 1998).
AfbrigðiAfbrigðið var. fallax, tunguskollakambur, er smávaxið jarðhitaafbrigði og á því eru gróbæru blöðin eins og hin blöðin (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst skjaldburkna en hann er með tennt smáblöð, ólíkt skollakambi (Hörður Kristinsson 1998).
Verndun
Afbrigðið var. fallax, tunguskollakambur, er á válista í hættuflokki EN (í hættu). Tunguskollakambur er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Útbreiðslukort
Myndir
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007
Snjódældabollar og gilskorningar, einkum neðan til í fjöllum en finnst einnig við jarðhita (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Skollakambur (Struthiopteris spicant)