Rannsóknir á fuglum
Á Íslandi verpa að staðaldri 75 tegundir fugla. Ísland er afar mikilvægur viðkomustaður á farleið nokkurra fuglategunda, gæsa og vaðfugla, milli varpstöðva á Grænlandi og í Kanada og vetrarstöðva í Evrópu. Þá berast til landsins, einkum á fartímum vor og haust, fjöldamargar tegundir flækingsfugla, bæði úr austri og vestri. Ýmsir hánorrænir fuglar halda hér til að vetrarlagi. Til þessa hafa með vissu sést alls um 370 tegundir fugla á landinu og á hverju ári sýna sig nýjar tegundir.
Hér má fræðast um ýmsar þær rannsóknir á fuglum sem unnið er að á Náttúrufræðistofnun Íslands.
- Fuglamerkingar
- Rannsóknir á hrafnsönd
- Skráning sjófuglabyggða
- Stofnvistfræði teistu
- Varpútbreiðsla íslenskra fugla
- Vöktun arnarstofnsins
- Vöktun bjargfugla
- Vöktun fálka
- Vöktun margæsa
- Vöktun rjúpnastofnsins

