Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Tjaldshreiður (Oystercatcher eggs - Haematopus ostralegus) eftir öskufall í Fljótshlíð, maí 2010. © Erling Ólafsson

Dýrasafn

Smádýrasafn

Ljósm. Erling Ólafsson

Í dýrasafni NÍ eru rúmlega 260 þúsund tegundasýni, en í hverju þeirra getur verið eitt eða nokkur þúsund eintök af tegundum sem lifa í sjó, ferskvatni og á landi. Dýrasafnið er grunnur rannsókna í flokkunarfræði, til að mynda á skilum milli líkra tegunda og þróunarskyldleika. Markmiðið er að safneintökin endurspegli hverskyns breytileika tegunda á öllum stigum lífsferilsins og sem víðast innan útbreiðslusvæðis þeirra. Stefnt er að tölvuskráningu alls safnkostsins svo þau nýtist sem best við gerð útbreiðslukorta fyrir einstakar tegundir, samantekt á tegundatali, válistum og miðlun upplýsinga á netinu.

Dýrasafnið er grunnur þess að hægt sé að ráðast í tilteknar rannsóknir, einkum þegar fullnægjandi sýni eru óaðgengileg úti í náttúrunni, eða það reynist of kostnaðarsamt og tímafrekt að afla nýrra sýna. Í dýrasafninu eru tiltæk eintök frá liðnum árum og öldum, en þau má nota til samanburðar við núlifandi eintök, t. d. ef meta á aukinn styrk ýmissa aðskotaefna í núlifandi dýrum. Dýraeintök eru lánuð tímabundið úr safninu til rannsókna eða á sýningar samkvæmt reglum um gripalán Náttúrufræðistofnunar.

                                                                    

Helstu safnhlutar

Sýni skráð í gagnagrunn

Áætlaður fjöldi óskráðra sýna

Umsjónarmaður

Burstaormar

1.050

5.000

Guðmundur Guðmundsson
Fiskar

167

1.600

Guðmundur Guðmundsson
Fuglar

13.000

450

Guðmundur Guðmundsson
Holdýr

3.882

7.000

Guðmundur Guðmundsson
Krabbadýr

9.601

35.000

Guðmundur Guðmundsson
Lindýr

37.160

3.500

Guðmundur Guðmundsson
Mosadýr

5.625

7.000

Guðmundur Guðmundsson
Skordýr, fjölfætlur og áttfætlur

80.247

12.000

Erling Ólafsson
Skrápdýr

6.280

13.000

Guðmundur Guðmundsson
Ýmsir aðrir hópar

4.370

13.100

okt. 2009, Guðmundur Guðmundsson


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Dýrasafn

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica