Fiskar
Á Íslandi er að finna fimm tegundir fiska í ferskvatni (lax, urriði, bleikja, hornsíli, áll) og um 340 tegundir hafa til þessa fundist í sjó á Íslandsmiðum. Engin hefð er fyrir fiskarannsóknum á Náttúrufræðistofnun Íslands, en stofnunin varðveitir eintök fjölmargra tegunda, bæði algengra og sjaldgæfra, í vísindasöfnunum. Fiskarannsóknir eru stundaðar á öðrum stofnunum.
- Hafrannsóknastofnunin (sjávarfiskar)
- Veiðimálastofnun (ferskvatnsfiskar)

