Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Dýrafræði

smellið til að stækka myndina í nýjum glugga
Lundi (Fratercula arctica) er talinn algengastur fugla á Íslandi, þ.e. með stærstan stofn, en finnst þó eingöngu í sjávarbjörgum og eyjum. Ljósm. Erling Ólafsson.

Dýrafræði (zoology) er víðfemt fræðasvið sem nær til dýraríkisins alls, allt frá frumstæðum svömpum til háþróaðra hryggdýra. Aðeins ein dýrategund er að öllu jöfnu undanskilin, þ.e. maðurinn Homo sapiens, sem talinn er verðskulda sitt eigið fræðasvið, mannfræði (anthropology).

Á Náttúrufræðistofnun Íslands eru stundaðar margþættar rannsóknir á sviði dýrafræði. Þar skal öðru fremur telja rannsóknir á fuglum, landhryggleysingjum og sjávarhryggleysingjum (Bioice verkefnið). Rannsóknir á spendýrum eru lítt stundaðar enda er einstökum tegundum þeirra sinnt á öðrum stofnunum. Hins vegar er alls kyns upplýsingum um þau safnað og haldið til haga í gagnagrunnum. Sama er um fiska að segja, en tekið er við sjaldgæfum tegundum frá sjómönnum og þær varðveittar í vísindasafni stofnunarinnar.

Rannsóknaverkefnin eru af ýmsum toga og áherslur breytilegar. Mikil áhersla er lögð á að afla grunnupplýsinga um dýraríki landsins, þ.e. hvaða

Mykjufluga
Mykjufluga (Scathophaga stercoraria) er með algengustu smádýrum á Íslandi og er hana að finna hvarvetna á landinu. Ljósm. Erling Ólafsson.

tegundir hér er að finna, hvar á landinu þær halda sig

og í hvers konar kjörlendum. Síðan koma til frekari

rannsóknir á lífsháttum og vistfræði einstakra tegunda, samfélögum þeirra og samspili við gróður og ýmsa umhverfisþætti. Nokkuð er einnig um rannsóknir á sviði flokkunarfræði en með þeirri fræðigrein er lagður grundvöllur að ofnagreindri upplýsingaöflun.

Fagsviðsstjóri í dýrafræði er Kristinn Haukur Skarphéðinsson




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica