Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Skemmukönguló (Tegenaria atrica ), nýr landnemi í birgðageymslum. © Erling Ólafsson

Fuglar

Á Íslandi er að finna áhugaverða fuglafánu. Hér verpa að staðaldri 75 tegundir fugla og nokkrar geðugar grágæsirað auki verpa hér stöku sinnum þegar sá gállinn er á þeim, þó þeim gangi treglega að nema land varanlega. Ísland er afar mikilvægur viðkomustaður á farleið nokkurra fuglategunda, gæsa og vaðfugla, milli varpstöðva á Grænlandi og í Kanada og vetrarstöðva í Evrópu. Þá berast til landsins, einkum á fartímum vor og haust, fjöldamargar tegundir flækingsfugla, bæði úr austri og vestri. Ýmsir hánorrænir fuglar halda hér til að vetrarlagi. Til þessa hafa með vissu sést alls um 370 tegundir fugla á landinu og á hverju ári sýna sig nýjar tegundir.

Þó fuglafána landsins sé ekki tegundarík er hún einstök að ýmsu leyti. Hér eru mjög stórir stofnar margra tegunda sjófugla, vaðfugla og andfugla, jafnvel svo stórir að verulegan hluta heimsstofnsins er hér að finna.

Á Náttúrufræðistofnun Íslands eru stundaðar margþættar rannsóknir á fuglum. Þar má nefna stofnvistfræði tegunda, vöktun og farhætti. Fuglamerkingar hafa verið stundaðar hér á landi frá árinu 1921 og eru þær mikilvægt tól í flestum rannsóknaverkefnum.


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Fuglar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
    • Fuglamerkingar
    • Rannsóknir á hrafnsönd
    • Skráning sjófuglabyggða
    • Stofnvistfræði teistu
    • Varpútbreiðsla íslenskra fugla
    • Vetrarfuglatalning
    • Vöktun arnarstofnsins
    • Vöktun bjargfugla
    • Vöktun fálka
    • Vöktun margæsa
    • Vöktun rjúpnastofnsins
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica