Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lundi - Puffin (Fratercula arctica). © Anette Th. Meier

Vöktun arnarstofnsins

Örninn (haförninn) er meðal sjaldgæfustu varpfugla landsins. Fram á seinni hluta 19. aldar varÖrn örninn miklu algengari og varp þá í öllum landshlutum en nú er útbreiðslan bundin við vestanvert landið. Vöxtur og viðkoma arnarstofnsins er lítil, þrátt fyrir alfriðun í rúm 90 ár en þó hefur örnum fjölgað hægt og bítandi í kjölfar þess að eitrun fyrir refi var bönnuð árið 1964 (sjá línurit). Fylgst hefur verið með arnarstofninum og hann vaktaður um margra áratugaskeið og er vöxtur hans og þróun betur þekkt en hjá nokkurri annarri fuglategund hér á landi. Markmið þessarar vöktunar er að fylgjast með breytingum á stofnstærð, afkomu og útbreiðslu arnarins. Staðbundin pör eru talin snemma vors og viðkoma síðan metin miðsumars.

Á vordögum 2006 var vitað um 66 arnarpör í landinu, auk ungfugla og hafa fuglarnir ekki verið fleiri síðan þeir voru friðaðir árið 1914. Þrátt fyrir það er einungis þriðjungur þekktra arnarsetra í ábúð og er útbreiðslan takmörkuð við vestanvert landið. Staða arnarstofnsins er engu að síður sterkari en verið hefur um nær aldarskeið.

smellið til að stækka

Arnarstofninn 1880 – 2006. Á fyrri hluta tímabilsins er stofnstærð byggð á grófu mati (opnir hringir) en síðar á beinum talningum (punktar).

Haförninn verpur á Íslandi, Grænlandi og strjált í Evrópu og Asíu. Örnum var útrýmt víða í Evrópu, fyrst með beinum ofsóknum en síðar reyndist efnamengun og eyðilegging búsvæða örnum skeinuhætt. Á síðustu áratugum hafa arnarstofnar í Norður-Evrópu tekið að vaxa að nýju í kjölfar markvissra verndaraðgerða. Ernir eru þó enn alfriðaðir og á válistum alls staðar í heimkynnum sínum. Ernir eru langlífir og geta orðið allt að 35 ára gamlir. Elsti örn sem vitað er um hér á landi var 18 ára.

Sjá nánar arnarvef Náttúrufræðistofnunar og Fuglaverndarfélags Íslands.

Meira um ernir

Umsjón: Kristinn H. Skarphéðinsson




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Fuglar > Vöktun arnarstofnsins

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
    • Fuglamerkingar
    • Rannsóknir á hrafnsönd
    • Skráning sjófuglabyggða
    • Stofnvistfræði teistu
    • Varpútbreiðsla íslenskra fugla
    • Vetrarfuglatalning
    • Vöktun arnarstofnsins
    • Vöktun bjargfugla
    • Vöktun fálka
    • Vöktun margæsa
    • Vöktun rjúpnastofnsins
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica