Beint í leiðarkerfi vefsins.
Arnarstofninn telur nú um 66 pör og hefur þrefaldast frá því að bannað var að bera út eitur fyrir tófu árið 1964. Sumarið 2005 komust fleiri ungar á legg en dæmi eru um á síðari árum. Varpið 2006 gekk hins vegar óvenju illa, einkum vegna afleits tíðarfars sem hafði reyndar mikil áhrif á fuglavarp um land allt.
Eftirlit með örnum hefur verið aukið og hafa m.a. senditæki verið sett á arnarunga til að auðvelda eftirlit. Þá voru allir ungar sem komust á legg sumarið 2006, 24 talsins, litmerktir og hafa þá verið merktir samtals 332 ernir á landinu frá fyrstu merkingunum 1939.
18. september 2006
Lesa meira
Talningar vorið 2006 hafa leitt í ljós að arnarstofninn heldur áfram að styrkjast. Hann er nú talinn um 67 pör og hefur ríflega þrefaldast á 40 árum. Jafnframt fjölgar nú pörum utan höfuðheimkynna arnarins vestanlands. Ernir hafa nú tekið upp ábúð á 5–6 fornum arnarsetrum við Húnaflóa og á Suðurlandi sem sum hver hafa staðið auð hátt á aðra öld.
20. maí 2006
Lesa meira
Elsti örn sem vitað er um á landinu náðist á Súðavíkurhlíð s.l. laugardag. Fuglinn hafði verið merktur sem ungi í hreiðri á Barðaströnd sumarið 1987 og var því 18 ára gamall. Örninn reyndist illa laskaður og brotinn á væng og varð því að svæfa hann.
31. október 2005
Lesa meira
Arnarstofninn hefur rúmlega þrefaldast frá því að bannað var að eitra fyrir tófu árið 1964 og telur hann nú 65 fullorðin pör. Af þeim urpu 42 pör í vor en aðeins 23 þeirra komu upp ungum eða rúmlega þriðjungur stofnsins. Kuldatíð á viðkvæmum tíma í apríl og maí hefur vafalítið haft áhrif á þennan slæga varpárangur en grunur leikur á að tvö hreiður hafi misfarist af mannavöldum. Engu að síður eru um þetta leyti 35 arnarungar að komast á legg, fleiri en nokkru sinni síðan farið var að fylgjast með arnarvarpi árið 1959. Þetta stafar af óvenju háu hlutfalli tvíbura í arnarhreiðrum, en þeir voru tólf að þessu sinni.
9. ágúst 2005
Lesa meira