Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Rita - Kittiwake (Rissa tridactyla). © Anette Th. Meier

Örninn tekur flugið

Hrafnaþing 13. október 2004

Örninn er meðal sjaldgæfustu varpfugla landsins en talið er að hér séu rúmlega 60 pör fullorðin pör, auk ungfugla.
Fram á 19. öld var örninn miklu algengari og varp þá í öllum landshlutum en nú er útbreiðslan að mestu bundin við Vesturland. Vöxtur og viðkoma arnarstofnsins er lítil, þrátt fyrir alfriðun í 90 ár en þó hefur örnum fjölgað hægt og bítandi í kjölfar þess að eitrun fyrir refi var bönnuð árið 1964. Undanfarin 5–6 ár hefur varpárangur arnarins heldur batnað og stofninn vaxið hraðar en áður.

Landnám á nýjum svæðum og aldrei fleiri ungar

Þetta hefur m.a. leitt til þess að ernir hafa nú numið land að nýju á Norðurlandi eftir 100 ára hlé og einnig á Suðurlandi en þar urpu ernir síðast laust fyrir 1950. Sumarið 2004 komust 34 arnarungar á legg á landinu og hafa þeir ekki verið svo margir frá því farið var að fylgjast reglulega með arnarvarpi fyrir 45 árum. Sennilega hafa jafnmargir ungar ekki komist á legg á Íslandi síðan um 1910, en heimildir um erni eru brotakenndar fram undir 1920. Um þetta má lesa nánar á arnarvef Fuglaverndarfélagsins og Náttúrufræðistofnunar.

Hverjar eru skýringarnar?

Í fyrirlestri sínum mun Kristinn Haukur rekja þróun íslenska arnarstofnsins og varpa ljósi á ástæður þess að hversu lengi það hefur tekið stofninn að ná sér eftir ofsóknir og eiturútburð á 19. öld.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Fuglar > Vöktun arnarstofnsins > Meira um ernir

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
    • Fuglamerkingar
    • Rannsóknir á hrafnsönd
    • Skráning sjófuglabyggða
    • Stofnvistfræði teistu
    • Varpútbreiðsla íslenskra fugla
    • Vetrarfuglatalning
    • Vöktun arnarstofnsins
    • Vöktun bjargfugla
    • Vöktun fálka
    • Vöktun margæsa
    • Vöktun rjúpnastofnsins
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica