Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Svartbakur - Great Black-backed Gull (Larus marinus). © Erling Ólafsson

Arnarstofninn styrkist...

Ernir verpa á nýjum slóðum

Talningar vorið 2006 hafa leitt í ljós að arnarstofninn heldur áfram að styrkjast. Hann er nú talinn um 67 pör og hefur ríflega þrefaldast á 40 árum. Jafnframt fjölgar nú pörum utan höfuðheimkynna arnarins vestanlands. Ernir hafa nú tekið upp ábúð á 5–6 fornum arnarsetrum við Húnaflóa og á Suðurlandi sem sum hver hafa staðið auð hátt á aðra öld.

...en slæmar horfur með varp 2006

Undanfarin ár hefur arnarvarp gengið vel og yfir 30 ungar komist á legg ár hvert. Horfur eru hins vegar slæmar með varp í ár; einungis 39 pör urpu svo vitað sé og þegar hefur fjórðungur hreiðra misfarist. Varpið hefst snemma, pörin hefja hreiðurgerð í lok mars, verpa upp úr miðjum apríl og fyrstu ungarnir klekjast úr eggjum um 20. maí. Slæmt tíðarfar og kalsaveður í mars og apríl, svo og norðangarri í maí hafa vafalaust átt stóran þátt í því hversu arnarvarp fer illa af stað. Einnig kemur til truflun af mannavöldum, því að á sumum svæðum hefur örnum haldist undarlega illa á eggjum sínum ár eftir ár.
20. maí 2005


Ársgamli örn Örn
Ungir ernir flakka víða um land áður en þeirra hefja varp 5-6 ára gamlir. Fuglinn á myndinni sást í Steingrímsfirði í maí 2006 og er ársgamall eins og sjá má á dökkum goggi og jafnlitum, rauðbrúnum búningi. Hann var einn af 35 ungum sem komust á legg sumarið 2006 og þekkist á færi á litmerkjum sem notuð hafa verið til að auðkenna einstaka erni undanfarin tvö ár. Ljósm. Böðvar Þórisson. .. Hvíti taumurinn er drit sem fuglinn sendir frá sér í kraftmiklum boga áður en hann hefur sig til flugs. Er líða tekur á vorið verða setstaðir arna fagurgrænir af þessum kjarngóða áburði..... Ljósm. Böðvar Þórisson.


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Fuglar > Vöktun arnarstofnsins > Meira um ernir

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
    • Fuglamerkingar
    • Rannsóknir á hrafnsönd
    • Skráning sjófuglabyggða
    • Stofnvistfræði teistu
    • Varpútbreiðsla íslenskra fugla
    • Vetrarfuglatalning
    • Vöktun arnarstofnsins
    • Vöktun bjargfugla
    • Vöktun fálka
    • Vöktun margæsa
    • Vöktun rjúpnastofnsins
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica