Vöktun margæsa

Margæsir verpa á heimskautasvæðum á Svalbarða, Sibiríu og N-Ameríku. Fuglar sem verpa í NA-Kanda fara um Ísland vor og haust til vetrardvalar á Bretlandseyjum, einkum N-Írlandi.

Markmið þessa verkefnis er að vakta stofninn með talningum vor og haust. Einnig hefur verið fylgst með farflugi margæsa með hjálp gervihnattasenda í samtarfi við Íra og Breta (sjá, http://www.wwt.org.uk/Supergoose/Maps.asp). Haustið 2006 fylgdust milljónir manna með daglegum fréttum af ferð gæsanna um Ísland í breska sjónvarpinu, BBC (sjá, http://www.bbc.co.uk/nature/animals/birds/supergoose/journey)

Umsjón: Guðmundur A. Guðmundsson fuglafræðingur

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: