Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lóuþræll - Dunlin (Calidris alpina). © Erling Ólafsson

Vetrarfuglatalning

Árlegar vetrarfuglatalningar hófust á Íslandi um jólaleytið 1952 að amerískri fyrirmynd. Þetta verkefni er ein lengsta samfellda vöktun sem stunduð hefur verið hér á landi og sú sem tekur til flestra fuglategunda Fyrsta árið var talið á 11 svæðum en þeim fjölgaði svo jafnt og þétt næstu árin og voru þau orðin 44 árið 1958 víðsvegar um land en fremur fá svæði bættust síðan við fram yfir 1970 (Ævar Petersen 1983). Fuglaáhugamenn tóku þessu nýja verkefni fagnandi og töldu margir af upphafsmönnum svæði sín áratugum saman eftir það. Frá upphafi hafa áhugamenn unnið þetta verk í sjálfboðavinnu og á síðustu árum hafa hátt á annað hundrað manns tekið þátt. Talningar fóru lengst af fram á frídegi milli jóla og nýárs og oft varð annar dagur jóla fyrir valinu. Af þeim sökum hafa talningar þessar oft verið nefndar „jólatalningar”.

Markmið vetrarfuglatalninga er að safna upplýsingum um fjölda og dreifingu fugla að vetrarlagi. Talningar eru staðlaðar og geta því nýtist til vöktunar einstakra stofna.

Umsjón: Kristinn Haukur Skarphéðinsson

Eyðublöð og leiðbeiningar:

  • Eyðublaðið á Excel formi (XLS)

  • Leiðbeiningar um útfyllingu (PDF)

Niðurstöður vetrarfuglatalninga 2002-2011



Heimildir um vetrarfuglatalningar


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Fuglar > Vetrarfuglatalning

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
    • Fuglamerkingar
    • Rannsóknir á hrafnsönd
    • Skráning sjófuglabyggða
    • Stofnvistfræði teistu
    • Varpútbreiðsla íslenskra fugla
    • Vetrarfuglatalning
      • Samantektir
    • Vöktun arnarstofnsins
    • Vöktun bjargfugla
    • Vöktun fálka
    • Vöktun margæsa
    • Vöktun rjúpnastofnsins
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica