Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Landselur - Harbour Seal (Phoca vitulina). © Anette Th. Meier

Heimildir

Skipulegar vetrarfuglatalningar á Íslandi hófust 21. desember 1952 að frumkvæði Barndaríkjamanns að nafni M. Lorimer Moe, en slíkar talningar eiga sér mun lengri sögu vestan hafs. Dr. Finnur Guðmundsson á Náttúrufræðistofnun (þá Náttúrugripasafn) skipulagði talningu í samstarfi við fuglaáhugamenn. Síðan hefur svokölluð jólatalning verið árlegur viðburður og hafa mörg hundruð manns tekið þátt frá upphafi. Moe gaf út grein um þennan viðburð í bandaríska tímaritinu 'Atlantic Naturalist' árið 1957. Sú grein var þýdd og birt í tímaritinu Blika 1983 (Bliki 2: 60-62).

Í sama hefti Blika er grein eftir Ævar Petersen sem nefnist Fuglatalningar að vetrarlagi: Saga og árangur (Bliki 2: 28-42). Þar er sagt frá þróun talninganna fram til 1982.

Til þessa hafa fáar samantektir verið birtar um niðurstöður talninganna. Þó var á árunum 1972 til 1978 fjölrituðum samantektum dreift til talningamanna og skýrslur áranna 1987 til 1989 hafa komið út í fjölriti Náttúrufræðistofnunar Íslands (Ævar Petersen og Gaukur Hjartarson 1989, 1991, 1993).

Undanfarin ár hefur ört vaxandi hluta talningaskýrslna verið skilað á tölvutæku formi og auðveldar það mjög fyrstu samantektir. Í janúar 2003 var tekið upp á þeirri nýbreytni að birta niðurstöður talninganna á heimasíðu Náttúrfræðistofnunar. Þau fyrstu skref steig Gunnar Þór Hallgrímsson líffræðingur. Vefsíður eru lifandi miðill sem gerir mögulegt að birta bráðabirgðaniðurstöður fljótt þó ekki hafi öll gögn skilað sér.

Unnið er að því að koma gögnum talninganna frá upphafi á stafrænan gagnagrunn til úrvinnslu. Búið er að tölvuskrá á að giska tvo þriðju hluta gagnanna sem enn hefur þó ekki verið samlesið við frumgögn.

HEIMILDIR

  • Arnór Þórir Sigfússon 1997. Vetrarfuglatalning 1996-97. – Bliki 18: 69-70.
  • Anon 1973-1979. Fjölrituð yfirlit yfir niðurstöður talninga árin 1972, 1973, 1974, 1975, 1976, 1977 og 1978. Óbirtar skýrslur, Náttúrufræðistofnun Íslands. Dreift til talningamanna.
  • Guðmundur A. Guðmundsson & Kristinn Haukur Skarphéðinsson 2008. Vetrarfuglatalningar. Fuglar 5: 24.
  • Guðmundur A. Guðmundsson, Kristinn Haukur Skarphéðinsson & Svenja N.V. Auhage 2008. Vetrarfuglatalningin 2008. - Bliki 29: 62-64. PDF, 6 MB
  • Moe, M. Lorimer 1957. [Fyrsta jólatalningin á Íslandi] – Atlantic Naturalist 12 (3): 89-91. Greinin birtist síðar í íslenskri þýðingu. - Bliki 2: 60-62.
  • Ævar Petersen 1983. Fuglatalningar að vetrarlagi: Saga og árangur. – Bliki 2: 28-42.
  • Ævar Petersen & Gaukur Hjartarson 1989. Vetrarfuglatalningar: Skipulag og árangur 1987. – Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 11. 42 bls.
  • Ævar Petersen & Gaukur Hjartarson 1991. Vetrarfuglatalningar: Árangur 1988. – Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 18. 38 bls.
  • Ævar Petersen & Gaukur Hjartarson 1993. Vetrarfuglatalningar: Árangur 1989. – Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 23. 43 bls.

 


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Fuglar > Vetrarfuglatalning > Heimildir

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
    • Fuglamerkingar
    • Rannsóknir á hrafnsönd
    • Skráning sjófuglabyggða
    • Stofnvistfræði teistu
    • Varpútbreiðsla íslenskra fugla
    • Vetrarfuglatalning
      • Samantektir
    • Vöktun arnarstofnsins
    • Vöktun bjargfugla
    • Vöktun fálka
    • Vöktun margæsa
    • Vöktun rjúpnastofnsins
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica