Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lóuþræll - Dunlin (Calidris alpina). © Erling Ólafsson

Fiðrildi

Páfiðrildi (Inachis io)
Páfiðrildi (Inachis io) er dæmigerð tegund sem berst til landsins með varningi. Ljósm. Erling Ólafsson.

Fiðrildi (Lepidoptera) mynda ættbálk í flokki skordýra (Insecta). Fjölbreytileiki þeirra er mikill. Sumar tegundir eru afar smávaxnar en aðrar með stórvöxnustu skordýrum. Sumar tegundir eru lítið fyrir augað á meðan aðrar eru annálaðar fyrir litskrúð og glæsileik.

Fiðrildafána Íslands er afar fáskrúðug, jafnvel í samanburði við næstu lönd. Er þar landfræðilegri einangrun um að kenna að nokkru leyti sem hefur tvíþættar afleiðingar. Mörg fiðrildi eiga í erfiðleikum með að berast til landsins yfir víðfeðmt hafið. Einnig er hafið þrándur í götu plöntutegunda sem fiðrildi hafa lífsviðurværi af, en flestar tegundir fiðrilda eru nokkuð eða mjög sérhæfðar í fæðuvali.

Til ársins 2005 hafa fundist og verið nafngreindar alls 146 tegundir fiðrilda sem fundist hafa á landinu. Þar af lifa 54 tegundir villtar í náttúrunni, 34 hafa borist til landsins fyrir eigið tilstilli með vindum (flækingar), auk tveggja sem óvíst er hvort fyrrgreindra á við um. Alls eru þetta 90 tegundir. Að auki finnast hér 8 tegundir að staðaldri innanhúss, okkur mönnum til óþurftar, og 48 nafngreindar tegundir hafa borist til landsins fyrir tilstilli okkar manna, með farartækjum og varningi.

Á Náttúrufræðistofnun Íslands eru stundaðar ýmiskonar rannsóknir á fiðrildum.

 

Tenglar:

  • Vöktun fiðrilda
  • Haustfeti
  • Flökkufiðrildi og slæðingar



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica