Smádýr í Surtsey
![]() |
| Liðssveit Carls H. Lindroth í Surtsey 1970, frá vinstri Sigurður H. Richter, Högni Böðvarsson, C.H. Lindroth og Hugo Andersson. Ljósm. Erling Ólafsson. |
Rannsóknir á smádýrum í Surtsey má rekja aftur til ársins 1964 þegar fyrsta skordýrið var fangað á eynni. Það reyndist vera rykmý af tegundinni Diamesa zernyi.
Í upphafi voru rannsóknirnar undir umsjón Svíans og Íslandsvinarins Carls H. Lindroth, prófessors í Lundi, sem fékk til liðs við sig fleiri fagmenn. Auk þess að kanna hvaða smádýr bárust til eyjarinnar rannsökuðu þeir smádýrafánu nálægra eyja og baklandsins undir Eyjafjöllum allt austur í Mýrdal. Lindroth og hans lið kom síðast til rannsókna í Surtsey árið 1972, nema Högni Böðvarsson sem hélt áfram komum sínum og rannsóknum á mordýrum (Collembola) til ársins 1978.
Erling Ólafsson, nú sérfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, steig sín fyrstu skref í fræðigreininni á grund Surtseyjar og var Lindroth innan handar við söfnun smádýra sumurin 1970 og 1971. Hann hélt áfram að koma til eyjarinnar, eftir að Lindroth hætti vegna aldurs og heilsubrests, allt til 1981. Upp frá því varð nokkurt hlé gert á smádýrarannsóknum í eynn eða til ársins 1995 er jarðvegsdýrafræðingarnir Peter Gjelstrup og Hólmfríður Sigurðardóttir komu þangað til rannsókna á jarðvegsdýrum.
![]() |
| Surtsey séð úr norðaustri, júlí 2005. Geirfuglasker, næsti nágranni, í forgrunni. Ljósm. Erling Ólafsson. |
Árið 2002 átti Erling Ólafsson endurkomu til Surtseyjar og hefur komið þangað árlega síðan til rannsókna og tengt þær við rannsóknir á gróðri og gróðurframvindu. Árið 2002 var Guðbjörg Inga Aradóttir, líffræðingur, honum til halds og traust og María Ingimarsdóttir árin 2005 og 2006.



