Geitungsdrottningin Regína og örlög hennar
Þann 11. maí 2003 gafst Erling Ólafssyni, skordýrafræðingi Náttúrufræðistofnunar, kostur á að fylgjast með trjágeitungsdrottningu (Dolichovespula norwegica) hefja byggingu bús í hleðsluvegg í garði sínum (1. mynd).
Byggingin hófst þá um morguninn. Kl. 16.00 var kominn vísir að fyrsta klakhólfinu sem hékk á veigalítilli undirstöðu neðan á hraunsteini (2. mynd).
Drottningunni var strax gefið nafnið Regína og fylgst náið með henni og búgerðinni í 10 daga eins og lesa má af dagbókinni hér að neðan.
Að kvöldi 20. maí komst hins vegar köttur í búið og tætti það niður. Því miður. Ekki bara fyrir Regínu og tilvonandi afkomendur hennar (sem sumum er þó kannski sama um að verði ekki mjög margir!) heldur líka fyrir alla þá sem fylgdust daglega með listasmíði Regínu hér á vefsíðunni.
Dagbók ljósmyndarans
Á öðrum búskapardegi Regínu 12. maí, hafði umgjörðin utan um klakhólfin tekið á sig kúluform þó enn hafi nokkuð vantað neðan á kúluna (4. mynd). Hún sló ekki slöku við þann daginn, enda veður hagstætt, og vann ötullega að byggingu búsins (5. mynd). En einnig þurfti að gefa sér tíma til að veita yl eggjunum í klakhólfunum sem nú voru orðin fjögur. Það gerði hún með því að hringa sig sig utan um hólfin (6. mynd).
Á þriðja degi 13. maí lauk Regína við fyrstu kúluna utanum klakhólfin (7. mynd) og síðdegis þann 14. var hún langt komin með næsta pappírslag og búin að styrkja festingarnar að ofan (8. mynd).
Á fimmta degi hafði Regína lokið við gerð annars pappírslagsins og var búið þá orðið 2,8 cm í þvermál. Einnig hafði hún hafist handa við gerð þriðja lagsins (9. mynd). Til að auka rýmið inni í kúlunni verður fyrsta kúlan rifin innan skamms og efnið endurnýtt í smíði klakhólfa.
Á sjöunda degi (17. maí) hefur heldur hægt á byggingaframkvæmdum, en þriðja pappírslagið er þó að verða hálfnað (10. mynd). Sennilega fer nú meiri tími í uppeldi sístækkandi ungviðisins.
Á áttunda degi (18. maí) hefur þriðja pappírslagið þokast töluvert niður fyrir miðja kúluna en á nokkuð í land með að lokast (11. mynd). Fyrsta og innsta kúlan hefur enn ekki verið rifin.
Á níunda degi (19. maí) var unnið ötullega við þriðju kúluna og afköstin merkjanleg frá stund til stundar enda hringurinn farinn að þrengjast (12. mynd). Regína lét ekki deigan síga fyrr en verkinu var nær lokið undir skammdegið. Snemma morgunin eftir (20. maí) hafði verið gengið fagurlega frá munnanum neðan á kúlunni sem nú reyndist 3,7 cm í þvermál (13. mynd). Því verður vart á móti mælt að hér er listasmiður á ferð.
Endalok Regínu
Er þriðja kúlan var fullgerð var samdægurs (20. maí) hafist handa við þá fjórðu (14. mynd). Þær fyrstu þrjár hengu allar á sömu festingunni. Sú fjórða var hins vegar fest beint upp í steininn án tengsla við þær fyrri til að styrkja grunn búsins. Um kvöldið fékk Regína óboðinn gest í heimsókn sem reyndist afdrifarík. Gesturinn var í líki kattar sem læsti klónum í búið og gekk endanlega frá því. Með þessum dapurlega endi lauk frásögn af drottningunni Regínu hér á vefsíðunni. Úti var ævintýri.















