Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Smádýr á jarðhitasvæðum

Náttúrufræðistofnun Íslands og Líffræðistofnun háskólans sáu um rannsókn á gróðri og smádýralífi jarðhitasvæða sem fram fór á árunum 2001–2002. Sex jarðhitasvæði í mismunandi landshlutum og í mismunandi hæð yfir sjó voru rannsökuð til að afla grunnupplýsinga um áhrif jarðhita á gróður og smádýralíf. Innan hvers svæðis var gróður, smádýr og nokkir umhverfisþættir rannsakaðir við misháan jarðvegshita, allt frá venjulegum köldum jarðvegi upp í heitan jarðveg alveg við hverina. Gróður var kortlagður, greindur til tegunda og þekja hans metin. Hiti í jarðvegi og jarðvegsdýpt voru mæld, jarðvegsgerð var metin og jarðvegs­sýni tekin til greininga á sýrustigi og kolefnisinnihaldi. Smádýrum var safnað í svokallaðar fallgildrur á fimm þessara svæða og þau svo greind til tegunda.

Rannsóknasvæði. Rannsóknir fóru fram á sex jarðhitasvæðum Reykjanes
Rannsóknasvæði. Rannsóknir fóru fram á sex jarðhitasvæðum. Smádýr voru þó ekki rannsökuð í Reykjadölum. Kort Lovísa Ásbjörnsdóttir. Reykjanes. Hveramiðja rannsóknasvæðisins við Gunnuhver á Reykjanesi. Reykjanes var eina jarðhitasvæðið sem rannsakað var á láglendi og er það nálægt sjó. Það var talsvert ólíkt hinum jarðhitasvæðunum hvað tegundasamsetningu varðar. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir.


Fremstidalur Ölkelduháls
Fremstidalur. Hverasvæði í Fremstadal, á háhitasvæði Hengilsins, þar sem yfirborðshiti var yfir 70°C á 10 cm dýpi við hveramiðju. Mjög fáar tegundir plantna og smádýra þola svo mikinn hita. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir. Ölkelduháls. Lítið hverasvæði við Ölkelduháls, á háhitasvæði Hengilsins, var rannsakað. Mikill munur var á jarðvegshita á 115 m bili, frá um 10°C á 10 cm dýpi, neðst í hægra horni myndarinnar, upp í um 80°C við hveramiðjuna. Miklar breytingar urðu bæði á gróðri og smádýralífi á þessu stutta bili. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir.
Hvíthólar Þeistareykir
Hvíthólar. Hverasvæði á háhitasvæði Kröflu þar sem hinn hái jarðvegshiti var afar staðbundinn og féll mjög hratt skammt frá hveramiðju. Þrátt fyrir óhrjálegt umhverfi við hveramiðjuna eru smádýr þar samt á ferli. Ljósm. María Ingimarsdóttir. Þeistareykir. Hverasvæði á Þeistareykjum. Tegundasamsetning smádýra var svipuð og á Hvíthólum en ólík jarðhitasvæðunum sem rannsökuð voru á sunnanverðu landinu. Flestar tegundir smádýra fundust á Þeistareykjum. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir.

Jarðhitasvæðin sem rannsökuð voru reyndust vera mjög ólík hvað smádýralíf varðar. Mikill munur var bæði á fjölda tegunda og tegundasamsetningu á milli rannsóknasvæða og fundust margar tegundir aðeins á einu eða tveimur svæðum.

Tiltölulega fáar tegundir smádýra þrífast við þær sérstöku aðstæður sem skapast næst hverum og fækkaði tegundum umtalsvert með auknum jarðvegs­hita. Tegunda­samsetning smádýra breyttist einnig mikið með auknum hita þannig að heitir og kaldir reitir höfðu fáar tegundir sameiginlegar. Af smádýrum fannst þó engin eiginleg jarðhitategund og geta allar tegundanna sem fundust í volgri eða heitri jörð líka þrifist utan jarðhitasvæða. Nokkrar tegundir eru þó þekktar af því að vera algengari við jarðhita en utan hans, svo sem fiðrildið reyrmölur Crambus pascuella og bjöllurnar eðjusmiður Bembidion grapei og leirsmiður Bembidion bipunctatum. Á svæðunum fundust fáeinar tegundir sem teljast sjaldgæfar á Íslandi og fundust þær við jarðhita, t.d. jötunuxinn Gyrohypnus angustatus og bjallan Tachyporus nitidulus.

Heildafjöldi smádýra Scatella tenuicosta f. thermarum
Heildarfjöldi smádýrategunda við mismunandi jarðvegshita á öllum rannsóknasvæðunum. Tegundum fækkar mikið með auknum hita. Mynd María Ingimarsdóttir. Laugaflugan Scatella tenuicosta f. thermarum. Þetta afbrigði flugunnar S. tenuicosta finnst einungis við jarðhita á Íslandi og þekkist ekki annars staðar í heiminum. Karl stígur í væng við áhugalitla kerlu og sýnir henni flókinn mökunardans. Flugurnar eru aðeins um 2 mm. Ljósm. Erling Ólafsson.

Verkefnið var unnið samkvæmt samningi um öflun gagna um náttúrufar vegna „Rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma“. Skýrsla með niðurstöðum rannsóknanna kom út árið 2003.

  • Hrafnaþing 10. mars 2004




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica