Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Fálkinn sem rataði heim!

Fálkinn
Hér situr fálkinn á barði og gæðir sér á önd sem sjá má á dúnflekknum í kringum hann. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson

Veturinn 1998-99 náðist fálki við Skagaströnd. Fuglinn sem var á 1. ári var lifandi en særður skotsári á væng og vængbrotinn. Hann var sendur suður til Náttúrufræðistofnunar og dýralæknar á Dýraspítalanum bjuggu um sárið. Fuglinn var hafður í haldi fram í lok apríl 1999 en þá var hann orðið það sprækur að honum var gefið frelsi. Fuglinum var sleppt við Úlfarsá í Reykjavík. Eftir þetta fréttist ekkert af fálkanum fyrr en nú í vor þremur árum seinna en þá fundu skólabörn hann nýlega dauðan við Skagaströnd. Kominn aftur á sínar fornu slóðir um 200 km langa vegalengd.

Fálkinn
Fálkinn sem hér er frá sagt var fyrirmyndar fyrirsæta meðan hann var í haldi. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson.



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica