Áttfætlur
Áttfætlur (Arachnida) er flokkur smádýra innan fylkingar liðdýra (Arthropoda). Eins og nafnið bendir til hafa áttfætlur átta fætur og eru auðþekktar á því. Þær hafa hvorki fálmara né vængi og auk þess er líkami áttfætlna annað hvort tvískiptur eða virðist óskiptur ólíkt skordýrum sem öll hafa þrískiptan líkama.
Fjórir ættbálkar áttfætlna finnast á Íslandi, það eru köngulær, langfætlur, drekar og mítlar (áttfætlumaurar) en auk þeirra má nefna sporðdreka sem eru flestum vel kunnugir þó þeir séu ekki landlægir á Íslandi.

