Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Tjaldshreiður (Oystercatcher eggs - Haematopus ostralegus) eftir öskufall í Fljótshlíð, maí 2010. © Erling Ólafsson

Könguló, könguló...

Spiderman klúbburinn
Spiderman hópur leikskólans Sæborgar með uppfylltan draum, tarantúlan hafði verið barin augum.

Að morgni dags 7. apríl 2005 fékk Náttúrufræðistofnun Íslands áhugaverða heimsókn. Þar var á ferð hópur áhugasamra drengja sem skipa Spiderman klúbb á leikskólanum Sæborg í Reykjavík. Í hópnum voru sex afar áhugasamir drengir sem komu með þrem kennurum sínum til að fræðast um köngulær og þar með öðlast frekari skilning á sjálfum Spiderman og athöfnum hans. Það var sérstaklega á óskalista drengjanna að fá að sjá tarantúlu og að leggja fjölbreytilegar spurningar fyrir Erling Ólafsson, skordýrafræðing stofnunarinnar. Áhuginn á viðfangsefninu var augljós og mikil spenna var ríkjandi, enda margt sem bar fyrir augu fróðleiksfúsra drengjanna á rannsóknastofunni. Þeir voru spurðir að því hvar stelpurnar væru en spyrjandi fékk að líta augnatillit sem gaf í skyn að viðfangsefnið væri ekki við hæfi stelpna! Það er ósk gestgjafa að heimsóknin verði ungu drengjunum eftirminnileg og að þeir hafi kvatt fróðari. Þeir voru leikskóla sínum til mikils sóma og er þeim hér með þakkað kærlega fyrir innlitið og óskað ánægjulegra stunda í Spiderman klúbbnum sínum. Áfram Spiderman!

Spiderman klúbburinn
Spiderman hópurinn leggur spurningar fyrir Erling Ólafsson, skordýrafræðing.
Spiderman klúbburinn
Á rannsóknastofunni var margt spennandi að skoða.




 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica