Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Geitungar: Nýliðar í umhverfi okkar

Vísindamaður að láni

Fræðsla um geitunga hefur notið mikilla vinsælda hjá grunnskólabörnum á öllum aldri og kennurum þeirra. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu upp á þessa fræðslu skólaárin 2005-2006 og 2006-2007.

Það hefur ekki farið á milli mála að börnin eru afar fróðleiksfús þegar geitungar eru annars vegar og auðvelt hefur verið að ná athygli þeirra. Það er margt sem gerir geitung

Erling að láni útí bæ
Erling Ólafsson í góðum nemaendahópi 6. bekkjar í Kópavogsskóla. Ljósm. Dýrleif Egilsdóttir.


ana áhugaverða. Um er að ræða nýja landnema sem fyrst gerðu vart við sig á 8. áratug síðustu aldar, allir þekkja nokkur deili á geitungum, hafa séð eða heyrt um þá fjallað í fjölmiðlum eða kynnst þeim af eigin raun, stundum af illu. Þá eru lífshættir geitunga athyglisverðir og gaman að fræðast um þá. Fræðslan er mismunandi ítarleg eftir aldri nemanna og er byggð á fyrirlestri fyrir elstu börnin, en myndasýningu og frjálslegra spjalli hjá þeim yngstu. Allir fá að sjá geitungabú með íbúum og innviðum þess og yngstu börnin fá mynd af geitungi til að lita.

Erling Ólafsson, skordýrafræðingur, annast þessa fræðslu.

  • Fróðleikur um geitunga

Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica