Hryggleysingjar á landi

Til hryggleysingja á landi heyra tegundir smádýra sem lifa a.m.k. á einhverju lífsskeiði sínu á þurru landi. Tegundirnar tilheyra mörgum fylkingum. Sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar Íslands á þessu sviði vinna fyrst og fremst með fylkinguna liðdýr (Arthropoda) sem er langstærsta fylkingin og hefur skordýr, áttfætlur, fjölfætlur og krabbadýr innan sinna vébanda.

Sjá einnig vef stofnunarinnar um Pöddur.

Á Náttúrufræðistofnun Íslands fara fram margþættar rannsóknir á hryggleysingjum á landi. Umfangsmesta verkefnið byggir á því að kanna hvaða tegundir smádýra er að finna á landinu, hver útbreiðsla þeirra er svo og kjörlendi og lífshættir. Einnig er fylgst með landnámi nýrra tegunda og hvernig þeim reiðir af. Eintökum er safnað vítt og breitt um landið við fjölbreytilegar aðstæður. Þau eru greind til tegunda, frá þeim gengið til varðveislu í vísindasöfnum stofnunarinnar og upplýsingar um þau skráðar í gagnagrunn til að gera þær aðgengilegar til frekari úrvinnslu.

Á Náttúrufræðistofnun Íslands er auk þessa verið unnið að ýmsum afmarkaðri rannsókna-verkefnum. Þar á meðal eru rannsóknir á áhrifum umhverfisþátta og umhverfisbreytinga á samfélög smádýra, landnámi smádýra og þróun samfélaga á nýju landi, landnámi nýrra tegunda á Íslandi og langtíma vöktun á fiðrildum.

Starfsmenn: Erling Ólafsson og María Ingimarsdóttir.

Rannsóknir á hryggleysingjum í ferskvatni eru lítt stundaðar á Náttúrufræðistofnun Íslands en þeim er sinnt á öðrum stofnunum, s.s.



 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: