Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Grasvefari (Eana osseana) í Surtsey, algengasta fiðrildi Íslands. © Erling Ólafsson

Flökkufiðrildi

Flagð undir fögru skinni

Glæsileg fiðrildislirfa barst Náttúrufræðistofnun Íslands þann 25. april 2002. Hún fannSöðulsneglast á pálmablaði í Blómavali í Sigtúni í Reykjavík og var blaðið töluvert bitið. Lirfan var gildvaxin, um 3 cm á lengd, grábrún á lit með eiturgrænan söðul og sérkennilegum hvítum merkjum. Auk þess var hún búin ógnvekjandi göddum (1. mynd). Allur búnaður benti til þess að hér væri válind “eiturnaðra” á ferð, en áberandi liturinn er dæmigerð viðvörun fyrir rándýr og gaddar til frekari varnar. Þegar kvikindið var snert gaf það auk þess frá sér megnan daun. Allt bar því að sama brunni að hér færi flagð undir fögru skinni. Lesa meira
 

Loks komu fiðrildi úr austri

Árlega berast til landsins erlend fiðrildi af ýmsu tagi. Slíkt á sér einkum stað á haustin þegar hlýir loftmassar berast yfir landið frá Evrópulöndum í suðaustri. Stundum er fjöldi fiðrildanna umtalsverður en þó eru mikil áraskipti af því. Ræðst það bæði af afkomu fiðrildanna á heimaslóðum þeirra það árið og hvernig háttar til með haustlægðirnar. Þessar fiðrildakomur til landsins eru heilmikið krydd í tilveru hinna fáu áhugamanna um þessi fræði hér á landi. Lesa meira
 

Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Flökkufiðrildi

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica