Vöktun fiðrilda á NÍ
Árið 1995 hófst vöktun fiðrilda á vegum Náttúrufræðistofnun Íslands á tveim stöðum á landinu, Tumastöðum í Fljótshlíð og Kvískerjum í Öræfum. Í upphafi var verkefnið þáttur í samvinnuverkefni á vegum norrænu ráðherranefndarinnar sem ætlað var að ná til allra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháens, og standa yfir í 10 ár.
Rykmý
Spánarsnigill nemur land
Haustin 2003 og 2004 fundust tveir stórir, rauðleitir sniglar í Reykjavík. Reyndist þar vera á ferð svokallaður spánarsnigill (Arion lusitanicus) sem í nágrannalöndum okkar er orðinn alræmd plága. Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7–15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum. Þessi snigill fannst í Ártúnsholti í Reykjavík í september 2004.
Spánarsnigill er ættaður frá Íberíuskaga (Spáni og Portúgal). Upp úr 1960 fór hann að berast norður Evrópu, til Norðurlanda og hefur nú fundist í Reykjavík. Hann dreifist nær eingöngu af mannavöldum sem egg eða ungviði með plöntum og jarðvegi.
Spánarsnigill er alæta en hann er sólginn í lyktarsterkar plöntur og étur auk þess hræ og hundaskít svo eitthvað sé nefnt. Á Íberíuskaga er spánarsnigill óalgengur en þar eru lífsskilyrði erfið vegna hita og þurrka. Mikill fjöldi eggja eykur líkur á að einhver afkvæmi lifi af. Í rakara loftslagi komast fleiri sniglar á legg. Þar getur fjöldinn því orðið gífurlegur og skaði þar með mikill, t.d. í garðrækt og matjurtagörðum.
Aðstæður hér eru góðar fyrir spánarsnigil. Úthafsloftslag hentar honum vel og fá dýr á norðurslóðum leggja sér hann til munns. Því má vænta þess að spánarsnigill nái hér fótfestu.
Hér má nálgast greinina Spánarsnigill finnst á Íslandi, því miður? sem birtist í Náttúrufræðingnum, 73. árg. 3.–4. hefti 2005
Lesa meira
Sniglar (Gastropoda)
Mítlar (Acari)
Drekar (Pseudoscorpiones)
Langfætlur (Opiliones)
Lífsferill krossköngulóar
Köngulær (Araneae)
Nýr tegundalisti yfir íslenskt rykmý
Höfundur er Þóra Hrafnsdóttir, líffræðingur, og vann hún verkið á Náttúrufræðistofnun Íslands sem verkefni til meistaranáms við Ferksvandsbiologisk Laboratorium, við Kaupmannahafnarháskóla. Leiðbeinandi var Claus Lindegaard, vatnalíffræðingur. Þóra er nú í hálfu starfi sem sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs og stundar jafnframt doktorsnám í vatnalíffræði við Háskólann í Exeter á Bretlandi. Lesa meira
Veggjatítla (Anobium punctatum)
Starinn og flóafárið
Eyjarani fundinn í Surtsey og Ingólfshöfða
Lesa meira
Hunangsflugur hringja inn vorið
Geitungar verða fyrir skakkaföllum
Geitungabúin
Lífsferlar geitunga
Í grófum dráttum er ferillinn á eftirfarandi veg. Það er við hæfi að hefja leik að vori. Drottning vaknar af vetrardvala þegar líða tekur á maí. Haustið áður hafði hún makast við karldýr og móttekið sæði þess sem hún varðveitir í sérstökum sáðhirslum í afturbolnum. Hún er því að fullu reiðubúin til að hefja búskap. Fyrstu dagana þarf hún þó að nærast til að hressa upp á orkubúskap líkamans og verða í stakk búin til að takast á við það vandasama verk sem bygging bús frá grunni og uppeldi afkvæma krefst af henni.
Lesa meira
Geitungar – nýliðar á Íslandi
Geitungar numu hér land á áttunda áratug nýliðinnar aldar. Alls hafa fjórar tegundir náð að festa sig í sessi. Þær eru trjágeitungur, holugeitungur, húsageitungur og roðageitungur.
LJÓSGILDRUR - GERÐIR OG VIRKNI
Lesa meira
Flagð undir fögru skinni
st á pálmablaði í Blómavali í Sigtúni í Reykjavík og var blaðið töluvert bitið. Lirfan var gildvaxin, um 3 cm á lengd, grábrún á lit með eiturgrænan söðul og sérkennilegum hvítum merkjum. Auk þess var hún búin ógnvekjandi göddum (1. mynd). Allur búnaður benti til þess að hér væri válind “eiturnaðra” á ferð, en áberandi liturinn er dæmigerð viðvörun fyrir rándýr og gaddar til frekari varnar. Þegar kvikindið var snert gaf það auk þess frá sér megnan daun. Allt bar því að sama brunni að hér færi flagð undir fögru skinni.
Lesa meira
- Loks komu fiðrildi úr austri
- Haustfeti – sannur haustboði
- Rauðafell undir Eyjafjöllum, Rang.
- Tegundir fiðrilda sem veiðst hafa í ljósgildrur 1995 til 2004
- Tumastaðir í Fljótshlíð, Rang.
- Rauðafell undir Eyjafjöllum, Rang.
- Mógilsá í Kollafirði, Kjós
- Skaftafell í Öræfum, A-Skaft.
- Kvísker í Öræfum, A-Skaft.


