Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Hagamús í Daníelslundi, Borgarfirði. © Margrét Hallsdóttir

Skaftafell í Öræfum, A-Skaft.

Í Skaftafelli var stofnaður þjóðgarður haustið 1967 og lagðist þá af búskapur og önnur landnýting. Árið 1962 fór fram allítarleg könnun á smádýrum í Skaftafelli á vegum sænskra fræðimanna, en margt er enn ókannað í þeim efnum. Því var ákveðið að bæta þekkingu á fiðrildum í þjóðgarðinum með því að koma þar fyrir ljósgildru en fiðrildi eru sá hópur smádýra sem helst koma fyrir augu þjóðgarðsgesta. Auk þess var áhugavert að fá samanburð við Kvísker.

Ljósgildra var sett upp í Skaftafelli 1999. Fyrsta sumarið var hún staðsett við bæinn Hæðir í um 200 m y.s. uppi í heiðinni. Hún var sett niður í graslendisbrekku um 100 m vestan við húsið. Staðsetning: 64°01´27´´N, 16°59´38´´V. Land var opið og frekar áveðra. Þar var hálíngresi ríkjandi, einnig háliðagras, vallelfting, gulmaðra, brennisóley, túnsúra, túnfífill og nálæg stök birkihrísla.

Fyrri staðsetning ljósgildru við brekkuræturnar (2000-2001) Seinni staðsetning ljósgildru við brekkuræturnar á bak við fjárhúsin (2002-2004)
Fyrri staðsetning ljósgildru við brekkuræturnar (2000-2001), 64°01´09´´N, 16°59´22´´V. Hæð 207 m y.s. Opið umhverfi við lágvaxið birkikjarr. Einnig gulvíðir, túnvingull, hrafnaklukka, gulmaðra, blágresi, vallarsveifgras, brennisóley og túnfífill. Seinni staðsetning ljósgildru við brekkuræturnar á bak við fjárhúsin (2002-2004). Mun lokaðra umhverfi en fyrr.


Árið eftir var gildran flutt niður að brekkurótum og staðsett í nágrenni við gömul fjárhús sem þar standa. Þar stóð gildran á uppgrónum áreyrum í ríflega 100 m hæð í jaðri birkiskógar við brekkuræturnar, en opið í kringum hana. Hún var höfð á sama stað árið eftir en vegna framkvæmda við fjárhúsin var hún flutt til um 50 metra þannig að hún lenti meira á bak við húsin og var að auki felld nokkuð inn í kjarrið við brekkuræturnar. Þar fangaði hún fiðrildi næstu þrjú árin, 2002–2004. Þá var ákveðið að hætta söfnun í Skaftafelli, alla vega um hríð, og horfa yfir farinn veg. Ýmis vandamál auk breytinga á staðsetningum höfðu komið upp og voru söfnunarseríurnar því ekki nógu haldgóðar sem vöktunargögn.

Umsjón með gildrunni í Skaftafelli hafði Ragnar F. Kristjánsson, þjóðgarðsvörður, en úrvinnsla gagna hefur farið fram á Náttúrufræðistofnun Íslands.

Gróðurfar var svipað á seinni staðnum og þeim fyrri, en gildran felld var inn í hávaxnara birkikjarr sem dró úr áhrifamætti ljóssins
Gróðurfar var svipað á seinni staðnum og þeim fyrri, en gildran felld var inn í hávaxnara birkikjarr sem dró úr áhrifamætti ljóssins.


Fyrsta sumarið uppi við Hæðir voru fönguð 2.282 fiðrildi af 27 tegundum. Eins og við mátti búast reynist firðildafánan öllu ríkulegri við brekkuræturnar 100 m neðar. Á fyrri staðnum þar niðri (árin 2000–2001) veiddust að jafnaði 8.510 fiðrildi á ári og 35 tegundir. Við flutninginn aftur fyrir fjárhúsinn og inn í kjarrið féll veiðin 2002–2003 niður í 3.624 firðildi á ári, en tegundafjöldinn hélst óbreyttur eða 34 tegundir. Þó ekki hafi verið íkja langt á milli staðanna, þá skiptir augljóslega miklu máli hvernig gildru er fyrir komið til að hún afli sem best. Alls veiddi gildran í Skaftafelli 44 tegundir fiðrilda á þessum fimm árum (Tegundaskrá). Úrvinnslu gagna 2004 er ekki lokið.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica