Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Mógilsá í Kollafirði, Kjós

Á Mógilsá er rannsóknastöð Skógræktar ríkisins. Starfsemin hófst árið 1968 og hefur áhersla verið lögð á rannsóknir á innfluttum trjátegundum og tilraunir með þær.

Skógræktarstöð við Esjurætur
Skógræktarstöð við Esjurætur. Gróskumikill birkiskógur og fjölbreytt val erlendra trjátegunda. Þarna er gamalgróinn, gróskumikill birkiskógur og mikil fjölbreytni erlendra trjátegunda. Gildrustöðin er um 400 m frá sjó.

Ljósgildruveiðar hófust á Mógilsá vorið 2005 og var sami háttur hafður á umönnun þeirra og gildrum á Tumastöðum og Kvískerjum, þ.e. söfnunartími var sá sami og vikulegar tæmingar fóru fram á sömu dögum. Á Mógilsá var þó aðeins ein gildra, ekki tvær eins og á hinum stöðunum tveim. Umsjón er í höndum Erlings Ólafssonar.

Gildruveiðin þetta fyrsta sumar á Mógilsá var nokkuð undir 10 ára meðalveiði á Tumastöðum en fjöldi tegunda áþekkur. Alls veiddi gildran 2.842 fiðrildi og tilheyra þau 26 tegundum. Tegundaskrá


Staðsetning: 64°12´35´´N, 21°42´29´´V. Hæð 18 m y.s. Í undirgróðri skógarins er klóelfting ríkjandi
Staðsetning: 64°12´35´´N, 21°42´29´´V. Hæð 18 m y.s. Skógarjaðar við brekkurætur. Gildra á milli gróskumikils birkis og hávaxins stikagrenis. Í undirgróðri skógarins er klóelfting ríkjandi. Þar er einnig túnvingull, axhnoðapuntur, mjaðjurt, brennisóley, túnfífill og gulvíðir.



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica