Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lóuþræll - Dunlin (Calidris alpina). © Erling Ólafsson

Tumastaðir í Fljótshlíð, Rang.

Tumastaðir er annar tveggja staða sem valdir voru til vöktunar fiðrilda á vegum hins samnorræna vöktunarverkefnis Moth Monitoring Scheme. Gagnasöfnun hófst vorið 1995 og hefur staðið óslitið síðan.

Trjárækt og ræktunarstöð í eigu skógræktar ríkisins þar sem ræktun hófst árið 1944
Trjárækt og ræktunarstöð í eigu skógræktar ríkisins þar sem ræktun hófst árið 1944. Fjölbreyttur trjágróður, en ríkjandi tegundir eru sitkagreni, hæstu tré 13-14 m, birki og alaskaösp. Í trjáræktinni og umhverfis hana er fjölskrúðugur og gróskumikill gróður, umfangsmiklar og víðirunnar. Tumastaðir eru um 21 km frá sjó.

Tveim gildrum var komið fyrir með um 75 m millibili, önnur á tiltölulega opnu svæði í jaðri skógar en hin meira umlukin trjágróðri. Tré birgja sýn á milli gildranna svo ekki er líklegt að þær veiti hvor annarri teljandi samkeppni.

Alls 50 tegundir fiðrilda veiddust á 10 ára tímabilinu 1995–2004, þar af ein ný fyrir landið. Að meðaltali 3.317 fiðrildi og 27 tegundir veiddust í gildru IS0101L á ári og 3.632 fiðrildi og 24 tegundir í gildru IS0102L.

Tegundaskrá.

Árið 2005 veiddust 4.079 fiðrildi af 32 tegundum í gildru IS0101L og 3.865 fiðrildi af 24 tegundum í gildru IS0102L og er veiðin því vel yfir meðaltali síðustu 10 ára. Það á meðal var engin ný tegund fyrir staðinn.

Gildra IS0101L Gildra IS0102L

Gildra IS0101L

Staðsetning: 63°44´19´´N, 20°03´53´´V. Hæð 89 m y.s. Túnjaðar með hálínugresi og háliðagrasi og nokkrum tegundum blómplantna. Túnið var slegið reglulega allt sumarið. Gildran var staðsett við röð af gömlum og hávöxtnum trjám, sitkagreni, stafafuru og birki.

Gildra IS0102L

Staðsetning: 63°44´18´´N, 20°03´58´´V. Hæð 85 m y.s. Framræstur ræktunarreitur þar sem ræktað var evrópulerki, gildra á bakka um 2 m djúps skurðar með rennandi vatni og gróskumiklum gróðri. Á bakkanum er röð af um 10 m háum alaskaöspum og teygja greinar þeirra sig út yfir gildruna. Að öðru leyti var bakkinn vaxinn fábreyttum gróðri, háliðagrasi og snarrótarpunti.
Erling Ólafsson hefur haft umsjón með gildrunum
Erling Ólafsson hefur haft umsjón með gildrunum á Tumastöðum en notið aðstoðar ýmissa samstarfsmanna á NÍ við tæmingar.



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica