Rauðafell undir Eyjafjöllum, Rang.
Ljósgildruveiðar hófust á Rauðafelli vorið 2005. Var staðurinn kærkomin viðbót við fiðrildarannsóknirnar, þar sem aðstæður eru mjög frábrugðnar öðrum söfnunarstöðum sem eru allir í eða nátengdir skóglendi. Þarna er land mjög einkennandi fyrir aðstæður undir hlíðum Eyjafjallanna, skóglaust og opið graslendi. Sigurþór Ástþórsson, ábúandi á Rauðafelli, gerði þetta kleift með óbilandi áhuga á skordýrum, frjóum huga og högum höndum til smíða.
 |
 |
| Sveitabýli undir Eyjafjöllum þar sem skepnuhald er að mestu aflagt. Gömul tún og graslendi einkenna staðinn og engin trjárækt er neins staðar í nágrenninu. Bærinn er um 4,5 km frá sjó. |
Staðsetning: 63°32´26´´N, 19°36´02´´V. Hæð 46 m y.s. Gildra í seytlurás við brekkurætur, á bak við gömul gripahús. Í rásinni var gróskumikið gras- og blómlendi. Skriðsóley ríkjandi, en einnig hálíngresi, vallarsveifgras, túnsúra, ætihvönn, skarifífill og tágamura. |
Á Rauðafelli var sami háttur hafður á og á hinum stöðunum, þ.e. vikulegar tæmingar á sömu dögum. Það er ein stök gildra eins og á Mógilsá.
Úrvinnsla á gögnum áranna 2005 og 2006 er í gangi.
 |
 |
| Sigurþór Ástþórsson, umsjónarmaður gildrunnar á Rauðafelli. Annast reglubundnar tæmingar og sendir gögnin til úrvinnslu á Náttúrufræðistofnun Íslands. |
Sigurþór við tæmingu á gildrunni. Gildruna smíðaði hann sjálfur með Ryrholm-gildru sem fyrirmynd, sem hann betrumbætti eftir eigin höfði. Sigurþór er metnaðarfullur áhugamaður um skordýr. |