Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Lífsferlar geitunga

Að afliðnum vetri
Í grófum dráttum er ferillinn á eftirfarandi veg. Það er við hæfi að hefja leik að vori. Drottning vaknar af vetrardvala þegar líða tekur á maí. Haustið áður hafði hún makast við karldýr og móttekið sæði þess sem hún varðveitir í sérstökum sáðhirslum í afturbolnum. Hún er því að fullu reiðubúin til að hefja búskap. Fyrstu dagana þarf hún þó að nærast til að hressa upp á orkubúskap líkamans og verða í stakk búin til að takast á við það vandasama verk sem bygging bús frá grunni og uppeldi afkvæma krefst af henni.

Byrjun búgerðar
Þegar hentugur byggingarstaður er fundinn er hafist handa við gerð fáeinna lítilla klakhólfa sem fest eru upp undir fast undirlag á mjóum stilk og einu eggi verpt í hvert þeirra strax á fyrsta degi. Síðan er byggð lítil kúla úr þunnu, ljósgráu pappírslagi utan um hólfin með litlu gati að neðanverðu, rétt nógu víðu til að drottningin geti smeygt sér þar í gegn. Síðan er öðru lagi bætt utan um og svo koll af kolli. Þannig stækkar kúlan smám saman og að viku liðinni er hún á stærð við golfkúlu. Jafnframt er klakhólfum fjölgað og ekki slegið slöku við varp og aðdrátt lífsviðurværis fyrir sísvangt ungviðið.

Frumsmíð bús, á öðrum degi byggingarframkvæmda Trjágeitungabú. Fullgert bú á klettavegg
Frumsmíð bús, á öðrum degi byggingarframkvæmda. Ljósm. Erling Ólafsson. Trjágeitungabú. Fullgert bú á klettavegg. Ljósm. Erling Ólafsson.


Fjölgar í heimili
Að þrem til fjórum vikum liðnum skríða svo fyrstu fullvöxnu geitungarnir úr púpum. Þar eru á ferðinni kvendýr sem eru mun minni en drottningin móðir þeirra, svokallaðar þernur, og er hlutverk þeirra að þjóna þeirri gömlu skilyrðislaust. Þernurnar leysa móður sína af hólmi við byggingarvinnuna og uppeldi yngri systkina. Drottningin getur því einbeitt sér að því að verpa og framleiða fleiri þernur til að byrja með. Þar með fara hlutirnir að ganga hratt fyrir sig og búið vex með hraði þannig að merkja má dagmun.

Framtíðin tryggð
Er halla fer að hausti þarf að huga að því að tryggja fjölskyldunni tengingu fram á næsta sumar. Er þá tekið til við gerð stærri klakhólfa og lirfurnar sem þar alast upp belgdar út af gæðafóðri. Það eru verðandi drottningar sem taka skulu upp þráðinn að ári. Samtímis tekur drottningin gamla upp á því að verpa ófrjóvguðum eggjum, sem því hafa helmingi færri litninga en drottningalirfurnar. Úr þeim eggjum koma karldýr, eingetnir synir drottningarinnar. Þessir nýliðar yfirgefa búið og dreifa sér um nágrennið.

Kyn geitunga
Kyn geitunga. Drottningin (uppi til vinstri), þernur (uppi til hægri), karldýr (niðri). Ljósm. Erling Ólafsson.

Og þá verður kátt í höllinni

Þar sem aðeins nýju drottningunum er ætlað að lifa fram á næsta vor verða þær að tryggja sér sæði karldýranna áður en þær leggjast í vetrardvala. Þá hittast "kóngar" og drottningar og makast. En gleðskapurinn tekur snöggan endi hjá þeim fyrrnefndu, því þar með lýkur hlutverki þeirra í þessu ferli og þeir hverfa til feðra sinna (þótt enga feður eigi). Drottningarnar varðveita nýfengið sæðið til næsta sumars, eins og fyrr var getið, en þá er það notað til að frjóvga eggin. Þar með er hringnum lokað......


  • Geitungar - nýliðar á Íslandi
  • Geitungsdrottningin Regína og örlög hennar
  • Geitungabúin
  • Geitungar verða fyrir skakkaföllum

Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica