Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Hunangsflugur hringja inn vorið

Húshumla (t.v.) og móhumla (t.h.)
Húshumla (t.v.) og móhumla (t.h.) leita fangaí blómi rósar í garði í Hafnarfirði. Húshumlumá þekkja á því að hún er stærri og áberandisvört um miðbik bolsins. Móhumlan er hinsvegar gul um sig miðja. Ljósm. Erling Ólafsson.

Hunangsflugur eru afar stundvísir vorboðar, en þær fara venjulega á kreik um 20. apríl. Húshumla Bombus lucorum er árrisulust þriggja tegunda sem hér er að finna. Stöku húshumlur kunna að þjófstarta á góðviðrisdögum fyrr í mánuðinum en það heyrir til undantekninga.

Húshumla er nýlegur landnemi hérlendis en hún fannst fyrst árið 1979 í Reykjavík og Heiðmörk. Síðan hefur hún dreifst um landið vítt og breitt.

Aðrar tegundir eru móhumla Bombus jonellus sem er útbreidd á láglendi um land allt og hefur auk þess fundist á nokkrum stöðum á hálendinu. Hún hefur að líkindum verið hér á landi frá ómunatíð. Um og upp úr miðri 20. öldinni barst hingað garðhumla Bombus hortorum. Henni vegnaði vel framan af og náði töluverðri útbreiðslu um landið suðvestanvert. Garðhumla hefur átt mjög erfitt uppdráttar síðustu tvo áratugina og er nú því sem næst horfin. Sennilega hefur hún orðið illa úti í samkeppni við húshumlu sem virðist eiga hér vænlegri framtíð fyrir sér.

Fyrst á vorin nærast hunangsflugur alfarið á frjókornum og hunangi víðitegunda. Þær húshumlur sem fyrstar fara á kreik eru mikið til háðar ræktuðum víðitegundum eins og alaskavíði sem blómstrar snemma og viðju. Síðar leita hunangsflugur fanga hjá ýmsum öðrum plöntutegundum. Húshumla virðist aðlagast aðstæðum úti í óspilltri náttúru næsta auðveldlega en nálægð sumarbústaða með ræktuðu umhverfi stuðlar þó verulega að velgengni hennar. Þá er alaskavíðir vinsæl skjólbeltategund við víða um land.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica