Starinn og flóafárið

Starar velja sér gjarnan hreiðurstæði í híbýlum manna
Starar velja sér gjarnan hreiðurstæði í híbýlum manna, t.d. inni, t.d. inni á loftum, í þakskeggjum eða holrýmum í veggjum. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson

Þegar vorið nálgast vaknar tilhlökkun og væntingar í brjóstum landsmanna. Fuglakliður kviknar og lífga upp á tilveruna. En engin er rós án þyrna. Stararnir vitja hreiðra sinna og flærnar sem þeim fylgja skríða úr púpum að afloknum vetrarsvefni. Eins og flestum er kunnugt velja starar fyrst og fremst að verpa í húsum okkar, t.d. inni á loftum, í þakskeggjum eða holrýmum í veggjum. Stari er mjög ötull við hreiðurgerðina og ber í holu sína ógrynni af hreiðurefnum, enda eru hreiður hans miklu meiri um sig en gengur og gerist hjá öðrum spörfuglum hér á landi. Þegar stari hefur verið óáreittur í sömu holunni um nokkurra ára skeið hefur myndast þar allvæn heysáta, þ.e. ef rými leyfir.

Flær fylgja flestum fuglum og spendýrum, einkum þeim sem gera sér bæli. Fullorðnu flærnar nærast á blóði hýsla sinna en ungviðið elst upp í hreiðrunum eða bælunum og étur það sem til fellur frá fuglunum og rotnandi hreiðurefnum. Lífsferill flónna er þannig að fullorðin dýr skríða úr púpum á vorin þegar hýslarnir hreiðra um sig. Þær byggja upp orkuforða sinn með því að næla sér í nokkra blóðslurka og verpa síðan í hreiðrin. Lirfur klekjast úr eggjum að nokkrum dögum liðnum, vaxa upp í hreiðrunum fram á mitt sumar og púpa sig þegar fullum vexti er náð. Þannig hvíla þær þar til vorar á ný. Stöku flær geta þó skriðið úr púpum í hlýindum á haustin.

Ef hungrið sverfur að staraflónni...
Það er alkunna að staranum fylgir fló. Hún hefur gjarnan verið kölluð starafló, en raun og veru er hér á ferðinni hin eina sanna hænsnafló (Ceratophyllus

Best er að fjarlægja hreiður á kuldatíma að haust- eða vetrarlagi
Best er að fjarlægja hreiður á kuldatíma að haust- eða vetrarlagi, en þá hvíla flærnar í púpum og eru til friðs. Ef ráðist er til atlögu á vorin verður ekki flóafriður á heimilinu! Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson

gallinae), enda er fræðiheitið kennt við hænsn (Gallus). Þótt hænsnin séu dálæti hænsnaflóarinnar leggst hún einnig á ýmsar aðrar tegundir fugla, svo sem dúfur og spörfugla, þar á meðal starann.

Þessu sambýli stara og flóar fylgir stundum alkunnugt vandamál, þ.e. flóafár í híbýlum okkar. Fyrsta árið sem stari byggir holu ríkir oftast friður, en þá er lagður grunnur að næstu kynslóð flóa. Ef starinn fær að vitja síns heima aftur að ári er ekki víst að vandamál skapist sem orð er á gerandi. Hins vegar er vá fyrir dyrum ef hann mætir ekki aftur eða aðgangur hans er hindraður. Flærnar skríða úr púpum sínum á hefðbundnum tíma, seint í mars og í apríl. Þær heimta blóðskammt sinn og engar refjar. Ef hann fæst ekki fyrirhafnarlítið sverfur hungur að og flærnar verða að gera eitthvað í málinu. Mikill óróleiki upphefst á heimilinu og flærnar leggjast í flakk. Það er leitað til allra átta út frá hreiðrinu. Sumar finna sér leið inn í híbýli okkar, aðrar leita út úr holunni og lenda fyrir utan húsin. Þar stökkva þær á allt sem leið á fram hjá, bæði menn og skepnur og taka sér far með viðkomandi. Þannig berast þær einnig inn í hús. Þess má geta að feldur hunda og katta hentar flónum einkar vel til að hanga í, enda verður flóafárið gjarnan

Starinn er fallegur og fjörugur fugl
Starinn er fallegur og fjörugur fugl. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson

verst þar sem slík heimilisdýr fá að ganga um götur.



...fúlsar hún ekki við mannablóði

Hér með hefur grunnur verið lagður að vandamáli sem margan hefur angrað síðan starinn hóf að verpa á höfuðborgarsvæðinu fyrir um 40 árum. Þótt starafló kjósi helst fuglablóð þá fúlsar hún alls ekki við blóði spendýra, þar með talinna manna. Þannig getur hún angrað íbúana í allnokkurn tíma framan af sumri. Þó nær hún varla að fjölga sér í íbúðum okkar, því umgengnin er að öllu jöfnu slík að rotnandi efni liggja ekki á glámbekk. Sumir verða illa útleiknir af völdum flóabita, en viðbrögðin eru mjög einstaklingsbundin. Sumir verða bitanna vart varir á meðan aðrir blása upp í bólgur og ofsakláða, sem ágerist þegar farið er að klóra. Það er háttur flónna að skorða sig af á meðan þær sjúga. Þess vegna er mjög algengt að menn séu bitnir um öklana. Flærnar stökkva upp í buxnaskálmar, koma sér fyrir undir sokkalíningum og athafna sig þar. Á skömmum tíma nær ein og sama flóin gjarnan að stinga nokkrum sinnum. Þess vegna er algengt að menn fái nokkur stungusár í þyrpingu. Þá er einnig algengt að menn séu stungnir undir belti og annars staðar þar sem föt þrengja að. Algengast er þó að flærnar leggist að fórnarlömbum sínum í svefni.

Starinn er friðaður fugl

Ótal fyrirspurnir berast til Náttúrufræðistofnunar Íslands á vori hverju varðandi þetta vandamál, en þeim spurningum verður sjaldnast svarað í stuttu máli. Flestir vilja að sjálfsögðu fá að vita hvað sé til ráða. Það sem vissulega er farsælast er að birgja brunninn og fyrirbyggja að stari nái að þröngva sér inn á heimilin. Ef hins vegar það gerist skal lögð áhersla á að hreinsa burt hreiður hans að varpi loknu. Á það skal bent að stari er friðaður fugl og er því lögum samkvæmt óheimilt að eyðileggja varp hans. Þess gerist heldur ekki þörf, því best er að fjarlægja hreiður á kuldatíma að haust- eða vetrarlagi, en þá hvíla flærnar í púpum og eru til friðs. Ef ráðist er til atlögu á vorin og sumrin er nokkuð víst að ekki verði flóafriður á meðan, í orðsins fyllstu merkingu. Mikilvægt er að hreinsa upp og fjarlægja öll hreiðurefni og helst að verða sér úti um eiturefni til að eitra allnokkurt svæði umhverfis hreiðurstaðinn. Til þess má t.d. nota permasekt sem garðeigendur hafa heimild til að nota án tilskilinna eiturefnaleyfa. Einnig er hægt að leita aðstoðar meindýraeyða. Oft er erfitt um vik að komast að hreiðrunum og verður ekki gert nema með meiriháttar umstangi og af þartilgerðum fagmönnum.


Þegar vandamálið er komið á hærra stig en þetta getur verið úr vöndu að ráða og þurft að meta hvert tilfelli fyrir sig. Draga má úr ágangi flóa í híbýlum með eitrun. Í þeim tilfellum verður að leita ráða hjá meindýraeyðum. Eins væri æskilegt að halda köttum inni við framan af sumri, því í umhverfi okkar leynast víða flær sem fagna umferð katta. En það verður ávallt grundvallaratriði að losna við hreiðrin og fyrirbyggja frekari hreiðurgerð.


 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: