Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Sveifflugan glersveifa (Eupeodes lundbecki) á Eyrabakka. © Erling Ólafsson

Nýr tegundalisti yfir íslenskt rykmý

Rykmý myndar stróka
Rykmý myndar stróka þar sem mökun fer fram. Lögun strókanna er mismunandi eftir tegundum. Ljósmynd: Arnþór Garðarsson.

Komið er út í ritröðinni The Zoology of Iceland nýtt, uppfært tegundatal yfir rykmý á Íslandi.
Höfundur er Þóra Hrafnsdóttir, líffræðingur, og vann hún verkið á Náttúrufræðistofnun Íslands sem verkefni til meistaranáms við Ferksvandsbiologisk Laboratorium, við Kaupmannahafnarháskóla. Leiðbeinandi var Claus Lindegaard, vatnalíffræðingur. Þóra er nú í hálfu starfi sem sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs og stundar jafnframt doktorsnám í vatnalíffræði við Háskólann í Exeter á Bretlandi.

20 nýjar tegundir fundust
Þessi yfirgripsmikla rannsókn á tegundafjölbreytileika og útbreiðslu rykmýs á Íslandi leiddi í ljós að tegundirnar eru nú 80 talsins, þar af eru 20 tegundir nýjar fyrir landið.
Við samanburð á rykmýsfánu Íslands og fánu nágrannalandanna kom í ljós að tegundir eru fáar hér á landi. Þetta má skýra með landfræðilegri einangrun landsins og norðlægri legu landsins. Aftur á móti er fjölbreytileiki rykmýs mun meiri en annarra hópa vatnadýra, sem algengir eru í ferskvatni í Evrópu. Sérstaðan í íslenskri náttúru er því mikil, rykmý er ríkjandi hópur í lífríki ferskvatns á Íslandi og mikilvægur hlekkur í fæðukeðjunni. Einnig leiddi samanburður á íslensku fánunni og fánu nágrannalandanna í austri og vestri í ljós að rykmýsfánan er af norður-evrópskum uppruna, frá Skandinavíu og Bretlandseyjum, og aðeins tvær tegundir teljast norðuramerískar og ein tegund er arktísk. Er þetta samhljóða niðurstöðum annarra rannsókna á skordýrafánu landsins. Í heftinu er, auk tegundatals, að finna útbreiðlsukort fyrir hverja tegund,

Karlfluga rykmýs

Karlfluga rykmýs, með fálmara eins og fjaðrakúst.

svo og upplýsingar um helstu búsvæði tegundanna.
Tegundalistinn er 169 bls. að stærð og fæst hjá höfundi.

Niðurstöður þessar eru hýstar í samræmdum gagnagrunni Náttúrufræðistofnunar um náttúru Íslands. Þessar hagnýtu upplýsingar um tegundafjölbreytileika mikilvægasta dýrahóps í ferskvatni á Íslandi munu ótvírætt styrkja íslenskar vatnalíffræðirannsóknir í framtíðinni svo og rannsóknir á loftlagsbreytingum á norðlægum slóðum, enda er rykmý einn sá dýrahópur sem notaður er til að lesa sögu loftslagsbreytinga aftur í tímann.
29. ágúst 2005

Rykmý á Íslandi: Fjölbreytileiki og útbreiðsla tegunda
Hrafnaþing 22. október 2003.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica