Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Sveifflugan glersveifa (Eupeodes lundbecki) á Eyrabakka. © Erling Ólafsson

Köngulær (Araneae)

Köngulær (Araneae)Köngulær mynda ættbálk í flokki áttfætlna (Arachnida). Allar köngulær eru rándýr og flestar þeirra nota eitur til að lama bráð sína. Þær hafa allar spunakirtla og geta framleitt silki en þó eru ekki allar sem spinna veiðivefi. Köngulóm má skipta í tvo hópa eftir lifnaðarháttum. Vefköngulær spinna vefi til að afla sér matar en föruköngulær annað hvort sitja fyrir bráðinni eða elta hana uppi. Flestar íslenskar köngulær eru vefköngulær.

Á Íslandi eru 84 tegundir köngulóa, flestar þeirra mjög litlar, og tilheyra þær tíu ættum. Tæplega þrír fjórðu íslenskra köngulóa heyra undir eina ætt, sem kallast voðköngulóa- eða dordingulsætt (Linyphiidae). Af og til eru Náttúrufræðistofnun færðar köngulær sem hafa borist til landsins með varningi eða farartækjum.

Fyrir nokkrum árum fóru fram á Náttúrufræðistofnun Íslands undirstöðurannsóknir á köngulóafánu landsins. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um hvaða köngulær finnast á landinu og meta útbreiðslu þeirra, jafnframt því að gera greiningalykil yfir íslenskar köngulær. Þessu verkefni lauk með útgáfu rits Inga Agnarssonar „Íslenskar köngulær“ hefti nr. 31 í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“. Ritið er nú uppselt.

 

  • Lífsferill krossköngulóar



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica