Langfætlur (Opiliones)
| Langfætla. Langleggur (Mitopus morio). Ljósm. Erling Ólafsson. |
Langfætlur er ættbálkur sem telst til áttfætlna (Arachnida). Líkami langfætlna er egglaga og ólíkt köngulóm hafa þær ekkert mitti. Augun eru tvö og standa þau á stuttum stilk framarlega á líkamanum ofanverðum.
Langfætlur eru ljósfælnar og viðkvæmar fyrir þurrki. Þær halda sig því gjarnan undir steinum á daginn en fara af stað í fæðuleit þegar kvöldar. Þær eru fyrst og fremst rándýr og hræætur en geta vel bjargað sér á t.d. sveppum, jurtaleifum og sykri.
Hér á landi eru fjórar tegundir langfætlna, langleggur (Mitopus morio), spóaleggur (Oligolophus tridens), krónuleggur (Megabunus diadema) og smáleggur (Nemastoma bimaculatum).
Fyrir nokkrum árum fóru fram á Náttúrufræðistofnun Íslands undirstöðurannsóknir á langfætlufánu landsins. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um hvaða langfætlur finnast á landinu og meta útbreiðslu þeirra. Þessu verkefni lauk með útgáfu rits Inga Agnarssonar „Íslenskar langfætlur og drekar“, hefti nr. 35 í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“.

