Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Holugeitungsdrottning (Vespula vulgaris), óvelkominn landnemi. © Erling Ólafsson

Drekar (Pseudoscorpiones)

Húsdreki (Chelifer cancroides)
Dreki. Húsdreki (Chelifer cancroides). Lifir í híbýlum okkar. Ljósm. Erling Ólafsson.

Drekar mynda ættbálk áttfætlna (Arachnida). Í útliti minna þeir talsvert á sporðdreka en eru auðgreindir frá þeim á því að það vantar á þá “sporðinn”, þ.e. halann. Drekar eru rándýr. Sumir elta uppi bráð sína en aðrir sitja fyrir henni. Þeir grípa bráðina með “griptöngum” og nota eitur til að lama hana áður en þeir taka til matar síns.

Á Íslandi eru aðeins tvær tegundir dreka. Mosadreki (Neobisium carcinoides) lifir úti í náttúrunni en húsdreki (Chelifer cancroides) er háður manninum um vistarverur.

Fyrir nokkrum árum fóru fram á Náttúrufræðistofnun Íslands undirstöðurannsóknir á drekafánu landsins. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um hvaða drekar finnast á landinu og meta útbreiðslu þeirra. Þessu verkefni lauk með útgáfu rits Inga Agnarssonar „Íslenskar langfætlur og drekar“ hefti nr. 35 í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica