Mítlar (Acari)
Mítlar er fjölbreyttur ættbálkur af flokki áttfætlna (Arachnida). Flestir eru þeir stuttir og breiðir í laginu og margir hverjir afar litlir. Lífshættir mítla eru mjög fjölbreytilegir. Margir halda sig í jarðvegi, sumir í vatni og aðrir eru sníkjudýr. Að sama skapi er fæða mítla fjölbreytt og mjög mismunandi eftir tegundum. Margar tegundir eru rándýr á meðan aðrar lifa t.d. á rotnandi plöntum, þörungum og sveppum, að ógleymdum þeim óþokkum sem nærast á blóði.
Mítlar á Íslandi hafa tiltölulega lítið verið rannsakaðir. Hér eru fjölmargar tegundir og eflaust eru margar enn ófundnar. Mítlar hafa einnig verið nefndir áttfætlumaurar.

