Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Laukbobbar (Oxychilus alliarius) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Spánarsnigill nemur land

Haustið 2003 fundust tveir stórir, rauðleitir sniglar í Reykjavík og Kópavogi. Ári síðar fannst sá þriðji, í Reykjavík. Reyndist hér vera á ferð svokallaður spánarsnigill (Arion lusitanicus) sem í nágrannalöndum okkar er orðinn alræmd plága. Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7–15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum. Sumarið 2005 fréttist af rauðum snigli í Smáíbúðahverfi í Reykjavík og tvö ungviði fundust í Reykjavík sumarið 2006 sem sennilega voru spánarsniglar.

Spánarsnigill
Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7–15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum. Þessi snigill fannst í Ártúnsholti í Reykjavík í september 2004. Ljósm. Erling Ólafsson.

Spánarsnigill er ættaður frá Íberíuskaga (Spáni og Portúgal). Upp úr 1960 fór hann að berast norður Evrópu, til Norðurlanda. Hann dreifist nær eingöngu af mannavöldum sem egg eða ungviði með plöntum og jarðvegi. Spánarsnigill er alæta en hann er sólginn í lyktarsterkar plöntur og étur auk þess hræ og hundaskít svo eitthvað sé nefnt, jafnvel aðra veikburða snigla. Á Íberíuskaga er spánarsnigill óalgengur en þar eru lífsskilyrði erfið vegna hita og þurrka. Mikill fjöldi eggja eykur líkur á að einhver afkvæmi lifi af. Í rakara loftslagi í nýjum heimkynnum komast margir sniglar á legg. Þar getur fjöldinn því orðið gífurlegur og skaði þar með mikill, t.d. í garðrækt og matjurtagörðum.

Aðstæður hér eru sennilegar góðar fyrir spánarsnigil, þ.e. eftir að vetur urðu mildari. Úthafsloftslag hentar honum vel og fá dýr á norðurslóðum leggja sér hann til munns. Því má vænta þess að spánarsnigill nái hér fótfestu.

                                Erling Ólafsson, september 2006


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica