Kvísker í Öræfum, A-Skaft.
Kvísker er annar tveggja staða sem urðu fyrir valinu til vöktunar fiðrilda hér á landi á vegum hins samnorræna vöktunarverkefnis Moth Monitoring Scheme. Gagnasöfnun hóft árið 1995 og stendur enn yfir.
Tveim ljósgildrum var komið fyrir með um 50 m millibili og 12 m hæðarmun, önnur á opnu svæði í túnjaðri við brekkurætur, hin í birkikjarri ofar í brekkunni.
Alls 64 tegundir fiðrilda veiddust á 10 ára tímabilinu 1995–2004, þar af 7 sem ekki höfðu áður fundist á Íslandi. Að meðaltali 3.474 fiðrildi og 36 tegundir veiddust í gildru IS0201L á ári og 4.796 fiðrildi og 37 tegundir í gildru IS0202L.
![]() |
| Hálfdán Björnsson, umsjónarmaður gildranna áKvískerjum. Hann hefur annast tæmingar og nærallar tegundagreiningar. Ole Karsholt, Kaupmannahöfn,hefur skorið úr vandamálum og staðfest nýjungar. |
Samantekt niðurstaðna veiðanna 2005 er í vinnslu.




