Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lundi - Puffin (Fratercula arctica). © Anette Th. Meier

Hunangsflugur

Húshumla (Bombus lucorum)
Húshumla (Bombus lucorum) aflar safa úr blómi rósar í húsagarði. Ljósm. Erling Ólafsson.

Hunangsflugur tilheyra ættinni Apidae en hún heyrir undir ættbálk æðvængna (Hymenoptera) í flokki skordýra (Insecta). Hunangsflugur eru félagsskordýr sem lifa og starfa margar saman í samfélögum sem saman standa af afkomendum einnar og sömu ættmóður (drottningar). Hún hefur búskapinn ein síns liðs að vori.

Ættinni tilheyra einnig fjölmargar tegundir býflugna. Alibýflugan (Apis mellifera) er þeirra kunnust enda ræktuð um allan heim til söfnunar hunangs, m.a. hérlendis þó í litlum mæli sé.

Hér á landi finnast þrjár tegundir hunangsflugna af ættkvíslinni Bombus, sem nefnast humlur. Móhumla (Bombus jonellus) hefur væntanlega verið hér um langa hríð. Garðhumla (Bombus hortorum) og húshumla (Bombus lucorum) bárust hingað á seinni hluta nýliðinnar aldar.

  • Hunangsflugur hringja inn vorið



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Hunangsflugur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica