Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Rita - Kittiwake (Rissa tridactyla). © Anette Th. Meier

MEINDÝR

Hveitibjöllur (Tribolium destructor) eru með algengustu meindýrum í híbýlum okkar
Hveitibjöllur (Tribolium destructor) eru með algengustu meindýrum í híbýlum okkar. Þær leita í mjölvöru af flestu tagi. Ljósm. Erling Ólafsson.

Á Náttúrufræðistofnun Íslands er boðið upp á greiningar- og ráðgjafarþjónustu fyrir almenning og meindýraeyða vegna meindýra í heimahúsum, verslunum og þjónustufyrirtækjum, verksmiðjum og öðrum framleiðslufyrirtækjum. Komið er með sýni í afgreiðslu stofnunarinnar og eru þau greind af sérfræðingum hennar við fyrstu hentugleika og niðurstöður póstsendar viðkomandi ásamt upplýsingum um lifnaðarhætti og skaðsemi dýranna og leiðbeiningum um aðgerðir, ef þess er kostur.

Þjónusta þessi er verðlögð á kr. 2.000.

Það skal tekið fram að oft er komið með smádýr í greiningu sem vart teljast til meindýra, þ.e. valda ekki skemmdum eða öðru tjóni. Sérfræðingar Náttúrufræðistofnunar vilja því beita nafngiftinni meindýr af varúð og gera greinarmun á því hvort dýr sé skaðvaldur eða bara hvimleiður granni. „Hvimleiður“ er síðan matsatriði hvers og eins.

Hér má tengjast umfjöllunum um smádýr sem geta hvort heldur sem er talist til meindýra eða hvimleiðra granna.

  • Asparglytta
  • Geitungar
  • Spánarsnigill
  • Starinn og flóafárið
  • Veggjatítla





Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Meindýr

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica