Spánarsnigill
![]() |
| Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7–15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum. Þessi snigill fannst í Ártúnsholti í Reykjavík í september 2004. Ljósm. Erling Ólafsson. |
Spánarsnigill (Arion lusitanicus) er alræmd plága í nágrannalöndum okkar, en fannst í fyrsta skipti hér á landi haustið 2003. Spánarsnigill er mjög stór snigill, 7–15 cm langur. Hann er oftast rauðbrúnn á lit en finnst í ýmsum rauðum og brúnum litum.
Landnám spánarsnigla hér á landi er slæm tíðindi. Full ástæða er til að mæta þeim af hörku. Á Náttúrufræðistofnun Íslands verður reynt að fylgjast grannt með framvindu mála á næstu misserum. Æskilegt er að þeir sem ganga fram á þessa stóru rauðu snigla fangi þá og komi þeim til stofnunarinnar og leggi þar með til upplýsingar um útbreiðslu þeirra.
Spánarsniglar á faraldsfæti
Tilkynningar um spánarsnigla árið 2008 voru margar og voru sniglar að finnast frá vori og fram á haust.
Segir enn af spánarsniglum
Frétt af spánarsniglum hér á vefsíðu NÍ 18. september 2007 vakti töluverð viðbrögð og tilkynningar um allskyns snigla bárust stofnuninni í kjölfarið. Þar á meðal var tilkynning um spánarsnigla á Ólafsfirði.
Spánarsniglar láta enn á sér kræla
Þann 31. ágúst s.l. (2007) fannst spánarsnigill í Salahverfi í Kópavogi og var honum komið til Náttúrufræðistofu Kópavogs. Annar snigill fannst svo á Arnarnesi í Garðabæ 13. september og var honum komið til Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Spánarsnigill nemur land
Haustið 2003 fundust tveir stórir, rauðleitir sniglar í Reykjavík og Kópavogi. Var það í fyrsta skipti sem spánarsnigill fannst hér á landi.
Hér má nálgast greinina Spánarsnigill finnst á Íslandi, því miður... sem birtist í Náttúrufræðingnum, 73. árg. 3.–4. hefti 2005.
Hér má nálgast upplýsingar um spánarsnigil hjá NOBANIS


