Ánar (Oligochaeta)
Ánar mynda flokk liðorma (Annelida). Þessum flokki tilheyra fjölmargar tegundir sem finnast ýmist í sjó, ferskvatni eða rökum jarðvegi. Ánar á landi tilheyra tveim ættbálkum, ánamöðkum (Haplotaxida) og hvítmöðkum (Plesiophora), sem báðir finnast hér á landi
.
Maðkarnir eru áberandi liðskiptir, án höfuðs og útlima og með fáeinum, stuttum burstum á liðum. Kynfæri eru í sérhæfðum liðum á bolnum framanverðum og mynda þessir liðir greinilegt belti á kynþroska dýrum. Ánarnir eru afar mikilvægir í jarðvegi, þar sem þeir stuðla ötullega að niðurbroti lífrænna leifa og tryggja greiða loftun um jarðveginn með göngum sínum.
Grááni (Aporrectodea caliginosa)


