Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Rita - Kittiwake (Rissa tridactyla). © Anette Th. Meier

Ættbálkar ánamaðka

Ánamaðkar (Haplotaxida)Taðáni

Ánamaðkar eru hinir dæmigerðu ormar, langir, grannir og fótalausir, skríða áfram með því að teygja úr bolnum og draga hann saman. Bolurinn er gerður úr ótal stuttum liðum. Þó flestir liðirnir séu hver öðrum líkir má greina augljósan mun á gerð þeirra eftir því hvort þeir mynda framenda, miðbik eða afturenda ormsins. Ánamaðkar eru tiltölulega einsleitir á lit, oftast rauðfjólubláir eða brúnir til gulbrúnir með koparlitaðri áferð.

Hvítmaðkar (Plesiophora)

Hvítmaðkar eru dæmigerðir ormar, langir og grannir, sem dragast sundur og saman og hlykkjast óreglulega þegar þeir skríða. Þeir eru fölir á lit, hvítir eða fölrauðir, nær gegnsæir þannig að greina má innvolsið. Það skiptir máli við tegundagreiningu, því að ytra útliti eru tegundirnar hver annarri lík. Hvítmaðkar eru allt að 3 cm á lengd en flestir eru miklu minni.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Ánar > Ættbálkar ána

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica