Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Lirfa Skógbursta, fer fjölgandi með hlýnandi loftslagi. © Erling Ólafsson

Hvítmaðkar (Plesiophora)

Hvítmaðkar eru dæmigerðir ormar, langir og grannir, sem dragast sundur og saman og hlykkjast óreglulega þegar þeir skríða. Þeir eru fölir á lit, hvítir eða fölrauðir, nær gegnsæir þannig að greina má innvolsið. Það skiptir máli við tegundagreiningu, því að ytra útliti eru tegundirnar hver annarri lík. Hvítmaðkar eru allt að 3 cm á lengd en flestir eru miklu minni.

Hvítmaðkar finnast bæði í söltu og fersku vatni og í rökum jarðvegi. Sennilega er óvíða meira af þeim en undir rotnandi þangi sem skolast hefur upp á strendur. Á landi vegnar þeim best í rotnandi plöntuleifum, t.d. í safnhaugum í görðum okkar. Þeir gegna mikilvægu hlutverki við niðurbrot plöntuleifa líkt og ánamaðkar. Á hánorrænum slóðum þar sem lítið er um ánamaðka eru hvítmaðkar mikilvægir í jarðvegi.

Hvítmaðkar á Íslandi

Nær ekkert er vitað hvítmaðkafánu Íslands. Henni hefur ekki verið sinnt til þessa, en gera má ráð fyrir að hún samanstandi af nokkrum tugum tegunda.




Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Ánar > Ættbálkar ána > Hvítmaðkar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica