Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Varmasmiður (Carabus nemoralis Müller) í Hveragerði. © Erling Ólafsson

Áttfætlur (Arachnida)

Áttfætlur skipa flokk smádýra innan fylkingar liðdýra (Arthropoda). Eins og nafnið bendir til hafa áttfætlur átta fætur og eru auðþekktar á því. Þær hafa hvorki fálmara Krossköngulóné vængi og auk þess er líkami áttfætlna annað hvort tvískiptur eða fljótt á litið óskiptur ólíkt líkama skordýra sem öll hafa þrískiptan líkama.

Flestar áttfætlur eru rándýr sem veiða önnur smádýr sér til matar. Sumar eru sníkjudýr sem leggjast á dýr og plöntur. Enn aðrar nærast á rotnandi plöntuleifum.

Fjórir ættbálkar áttfætlna finnast á Íslandi. Þeir eru köngulær (Araneae), langfætlur (Opiliones), drekar (Pseudoscorpiones) og mítlar (Acari). Þá má geta sporðdreka (Scorpiones) sem eru alkunnir og skipa ættbálk sem ekki finnst hér á landi.

 

  • Ættbálkar áttfætlna



Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Áttfætlur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica