Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Rita - Kittiwake (Rissa tridactyla). © Anette Th. Meier

Mítlar (Acari)

Mítlar voru til skamms tíma nefndir áttfætlumaurar. Flestar tegundir þeirra eru agnar litlar, sumar ekki greinilegar með berum augum. Líkamshlutar eru vart aðskiljanlegir, höfuð, frambolur og afturbolur eru samvaxinn í einn bol, sem gjarnan er stuttur og breiður. Á sumum er líkaminn allur mjúkur en aðrar tegundir hafa harða skel. Fullvaxta dýr hafa fjögur pör ganglima en ungviði hafa þrjú pör á fyrstu þroskastigum.

Lífshættir mítla eru mjög fjölbreytilegir. Margir halda sig í jarðvegi, sumir í vMitillatni og aðrir eru sníkjudýr. Að sama skapi er fæða mítla fjölbreytt og mjög mismunandi eftir tegundum. Margar tegundir eru rándýr á meðan aðrar lifa t.d. á rotnandi plöntum, þörungum og sveppum, að ógleymdum þeim óþokkum sem nærast á blóði. Mítlar eru í gríðarfjölda í jarðvegi.

Mítlar á Íslandi

Mítlar hafa tiltölulega lítið verið rannsakaðir á Íslandi. Margar tegundir háfa þó fundist hér og eflaust eru fjöldamargar enn ófundnar. Þegar jarðvegssýni eru skoðuð má sjá aragrúa mítla og allskyns gerðum. Þá eru mítlar í híbýlum okkar, í rúmfötum, teppum og matvælum. Aðrir grafa sig í húð manna og dýr og enn aðrir taka fórnarlömbum blóð.

Strandmítill (Neomolgus littoralis)

 Sníkjumitlar á langlegg

 

 

 

 

 

 

 Sníkjumítlar á langlegg


Þú ert hér: Forsíða > Dýrafræði > Landhryggleysingjar > Íslenska fánan > Áttfætlur > Ættbálkar áttfætlna > Mítlar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Dýrafræði

  • Spendýr
  • Fuglar
  • Fiskar
  • Sjávarhryggleysingjar
  • Landhryggleysingjar
    • Íslenska fánan
    • Meindýr
    • Fróðleikur
  • Rannsóknir
  • Dýrasafn
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica