Mítlar (Acari)
Mítlar voru til skamms tíma nefndir áttfætlumaurar. Flestar tegundir þeirra eru agnar litlar, sumar ekki greinilegar með berum augum. Líkamshlutar eru vart aðskiljanlegir, höfuð, frambolur og afturbolur eru samvaxinn í einn bol, sem gjarnan er stuttur og breiður. Á sumum er líkaminn allur mjúkur en aðrar tegundir hafa harða skel. Fullvaxta dýr hafa fjögur pör ganglima en ungviði hafa þrjú pör á fyrstu þroskastigum.
Lífshættir mítla eru mjög fjölbreytilegir. Margir halda sig í jarðvegi, sumir í v
atni og aðrir eru sníkjudýr. Að sama skapi er fæða mítla fjölbreytt og mjög mismunandi eftir tegundum. Margar tegundir eru rándýr á meðan aðrar lifa t.d. á rotnandi plöntum, þörungum og sveppum, að ógleymdum þeim óþokkum sem nærast á blóði. Mítlar eru í gríðarfjölda í jarðvegi.
Mítlar á Íslandi
Mítlar hafa tiltölulega lítið verið rannsakaðir á Íslandi. Margar tegundir háfa þó fundist hér og eflaust eru fjöldamargar enn ófundnar. Þegar jarðvegssýni eru skoðuð má sjá aragrúa mítla og allskyns gerðum. Þá eru mítlar í híbýlum okkar, í rúmfötum, teppum og matvælum. Aðrir grafa sig í húð manna og dýr og enn aðrir taka fórnarlömbum blóð.
Strandmítill (Neomolgus littoralis)
Sníkjumítlar á langlegg


